Subpage-banner-27

Á döfinni > Iceland

Hvenær 25/3/2010 (Fim), 16:00 - 18:00
Hvað Landssamtök æskulýðsfélaga & Co. - OPIÐ HÚS

Ungt fólk er um 24% þjóðarinnar en hver eru áhrif þess í þjóðfélaginu?

Ungt fólk á aldrinum 15-30 ára er 24% þjóðarinnar. Þrátt fyrir að telja ríflega 24% þjóðarinnar eru áhrif hópsins lítil og lítil áhersla lögð á málefni hans sem heildar. Af þessum hópi vinnur fjöldinn allur af ungu fólki að ýmsum málefnum í æskulýðsfélögum landsins. Gegnum starf sitt í æskulýðsfélögum öðlast ungt fólk tækifæri til að vinna að verkefnum sem auka færni þeirra á mörgum sviðum, veita þeim tækifæri til að vinna að málefnum sínum en síðast en ekki síst vinna að málefnum sem eru til góða fyrir samfélagið í heild.

Til að vekja athygli á þessum mikilvægu hlutverkum æskulýðsfélaga stenda Landssamband æskulýðsfélaga (LÆF) og aðildarfélög þess fyrir opnum degi, fimmtudaginn 25. mars n.k. milli klukkan 16:00 og 18:00 í Hinu húsinu.

Á deginum gefst gestum og gangandi tækifæri á að kynna sér að hvaða verkefnum æskulýðsfélög vinna að, hvað þau hafa að bjóða ungu fólki sem og hvaða hlutverki þau gegna í samfélaginu. Þetta er frábært tækifæri fyrir alla áhugasama að koma og kynna sér æskulýðsfélög og spjalla við ungt fólk úr ýmsum félögum um starfsemi þeirra.

Dagurinn er öllum opin en við hvetjum ungt fólk sérstaklega til að mæta og kynna sér hvaða tækifæri æskulýðsfélög bjóða upp á. Þingmönnum, ráðherrum, Æskulýðsráði og embættismönnum í Mennamálaráðuneyti hefur verið boðið sérstaklega ásamt æskulýðsfélögum og ungmennaráðum á höfuðborgarsvæðinu.

Hvar

Hitt húsið
Pósthússtræti 3-5
101 Reykjavík

Á döfinni

Upplýsingar