Subpage-banner-27

Að tengjast AFS

Einstakt tækifæri

AFS veitir ungmennum á aldrinum 15-18 ára tækifæri til að dvelja í tæpt ár, hálft ár, 3 mánuði eða 4-6 vikur (sumardvöl) í öðru landi, eignast nýja vini, kynnast menningu landsins, háttum þess og siðum. Sem skiptinemi býrðu hjá fjölskyldu, gengur í skóla eða tekur þátt í dagskrártengdri dvöl ef um sumardvöl er að ræða og ert eins og hver annar íbúi á staðnum. Þú ert ekki gestur eða ferðamaður, þú ert hluti af fjölskyldunni sem þú býrð hjá. Fjölskyldan fær enga greiðslu fyrir að hafa þig, hún tekur skiptinema áhugans vegna.

Hvers vegna skiptinemi?

  • Til að víkka sjóndeildarhringinn; það sem áður var framandi verður hluti af þínu daglega lífi.
  • Til að öðlast nýja sýn á lífið og auka þar með eigin þroska og skilning á umheiminum.
  • Til að eignast nýja fjölskyldu, heimili og nýja vini.
  • Til að upplifa nýjan skóla og bæta við sig þekkingu.
  • Til að eignast ný áhugamál.
  • Til að ná fullkomnu valdi á alþjóðlegu tungumáli eða tungumáli sem fáir kunna.
  • Til að bera meiri virðingu fyrir annarri menningu og auka skilning sinn á því hvers vegna fólk er ólíkt.
  • Til að auka náms- og starfsmöguleika þína í framtíðinni.

Dvöl erlendis

Skiptinemadvöl fyrir framhaldsskólanema

Að taka á móti skiptinema

Nýr fjölskyldumeðlimur

Sumardvöl 2010

AFS á Íslandi býður upp á sumardvöl á hverju ári.

Þau lönd sem verða í boði sumarið 2010 og eru ætluð 14 ára og eldri eru Tæland, Tyrkland, Ekvador, Chile, Brasilía og Japan. Mögulegt er að sumardvalir í Paragvæ, Panama og sumarbúðir í Tyrklandi eigi eftir að bætast við.

Land sem ætlað er eldri en 18 ára (ath. ekkert aldurshámark) er Túnis.

Í þátttökugjöldum er innifalið: undirbúningsnámskeið fyrir nema á Íslandi, undirbúningsfundur fyrir foreldra, námskeið/fundir í dvalarlandi við komu og brottför, dvöl hjá fósturfjölskyldu/m, önnur gisting og fæði (þegar ekki er dvalið hjá fósturfjölskyldum), aðgangur að stuðningskerfi AFS, sjúkra- og slysatryggingar, dagskrártengdir liðir og ferðir innanlands í dvalarlandi.

Utan þátttökugjalda: ferðir milli Íslands og dvalarlands auk vasapeninga.

• Fjöldi þátttakanda er takmarkaður.
• Uppgefnir brottfarar- og komudagar eru með fyrirvara um breytingar.

Sótt skal um allar þessar dvalir rafrænt á heimasíðu AFS á Íslandi eins og um venjulega skiptinemaumsókn væri að ræða:
http://www.afs.is/isl_is/view/6819.
3afs Useful_-_educators_4 Get_involve_-_host_-_next_step