AFS á Íslandi býður upp á sjálfboðaliðadvöl á vegum AFS og á vegum EVS. EVS er Evrópsk sjálfboðaliðaþjónusta sem er hluti af ungmennaáætlun Evrópusambandsins.
Hægt er að dvelja frá 4 vikum til 12 mánaða.
Sjálfboðaliðadvöl AFS:
Mörg lönd í boði t.d. Ástralía, Brasilía, Ghana, Gvatemala, Indland, Paragvæ og Venesúela.
Verð er frá 200.000 kr. og innifalið er undirbúningsnámskeið,stuðningskerfi AFS, tungumálanám, fæði og húsnæði, allar trygginar og vasapeningar.
18 ára aldurstakmark – ekkert aldurshámark!
Sjálfboðaliðadvöl EVS:
Hægt er að velja um verkefni frá 32 Evrópulöndum. Verkefnin eru frá 4 vikum til 12 mánaða. Sjálfboðaliðadvölin er þátttakendum algjörlega að kostnaðarlausu. Innifalið er flug fram og tilbaka, undirbúningsnámskeið, tungumálanámskeið, fæði og húsnæði, tryggingar og vasapeningar.
EVS er fyrir aldurinn 18 til 30 ára.
