Lýsing á dvöl
| Lengd dvalar | Byrjun | Lok | Verð | Hámarksaldur við brottför |
|---|---|---|---|---|
| Ársdvöl | Júlí | Júní | 1.100.000- | 18,6 ára |
| Ársdvöl | Febrúar | Janúar | 1.100.000- | 18,0 ára |
| Hálfsársdvöl | Febrúar | Ágúst | 950.000- | 18,0 ára |
Brasilía er fimmta stærsta land heims og liggja landamæri landsins að öllum löndum Suður-Ameríku, að aðskildum Síle og Ekvador. Landið er þekkt fyrir fegurð sína og hið einstaka Karnaval í Rio de Janeiro. Þar ólíkt öðrum löndum í Suður-Ameríku er töluð portúgalska.
AFS í Brasilíu hefur verið starfrækt frá árinu 1956 og eru um 85 virkar deildir í landinu. Árlega koma um 300 nemar til landsins, frá um 33 löndum.
Flogið er til Sao Paolo þar sem vel merktir sjálfboðaliðar og starfsfólk taka á móti nemum. Þaðan er haldið á tveggja til þriggja daga komunámskeið sem haldið er í grennd við flugvöllinn. Eftir það fara nemar svo á sín svæði og hitta fórsturfjölskyldur sínar.
Auk komunámskeiðs, verður haldið svokallað “6 week camp” þar sem farið er yfir dvölina fram að þessu. Í lok dvalar er svo haldið lokanámskeið þar sem nemar fá tækifæri til að hitta aðra AFSara og ræða um dvölina. Einnig skipuleggja sjálfboðaliðar innan deildanna félagslíf fyrir nema.
Brasilíumenn eru vingjarnlegir og hlýjir. Fjölskyldan skiptir þá miklu máli og það er yfirleitt móðirin sem sér um heimilið. Nemar geta þó átt von á því að þurfa að hjálpa til með húsverkin. Fjölskyldur verda börn sín vel og mega stelpur eiga von á því að fá styttri útivistartíma en strákar. Mikilvægasti tími dagsins hjá Brasilíumönnum er matartími með fjölskyldunni og er krafist þess af nemum að þeir mæti í mat, nema að látið sé vita áður.
Brasilísk ungmenni klæða sig óformlega en þó í takti við tískuna hverju sinni. Nemendur eru þó hvattir til að taka með sér fínni klæðnað til að vera í við sérstök tækifæri.
Skólar í Brasilíu eru bæði ríkis og einkareknir og geta nemendur átt von á því að lenda í ríkis eða einkareknum skólum. Nemendur fara í skólann á morgnana eða eftir hádegi, en aldrei bæði. Þeir geta átt von á því að þurfa að vera í skólabúningum sem þeir greiða fyrir sjálfir.
Talið er að nemendur þurfi um 150 dollara á mánuði í vasapening.
Vissir þú að…
...Styttan af Jesú Krist í Rio de Janeiro er eitt af sjö undrum veraldar
...Brasilía er nefnt í höfuðið á tré
...Brasilía er höfuðborg Brasilíu
...25% af regnskógum jarðar er að finna í Brasilíu
ATH sjá frekari upplýsingar í bæklingnum hérna til hliðar
