Subpage-banner-27
Veljið annað land

Chíle

Focuson-9

Lýsing á dvöl

Lengd dvalar Byrjun Lok Verð Hámarksaldur við brottför
Ársdvöl Febrúar Janúar 1.250.000- 18,0

Chile land við vesturströnd Suður-Ameríku og nær yfir hálfa strandlengju álfunnar. Það á landamæri að Perú, Bólivíu og Argentínu og er langt og mjótt. Chile hefur þótt eitt þróaðasta land Suður-Ameríku og býr yfir efnahagslegu jafnvægi. Höfuðborgin “Santiago” hefur mjög “evrópskan” brag sem Chile búar eru stolti af.

AFS í Chile hefur verið starfrækt frá árinu 1958 og starfa fjölmargir sjálfboðaliðar fyrir samtökin í 38 deildum víðs vegar um landið. Árlega koma um 110 skiptinemar til landsins frá yfir 12 löndum.

Flogið er til Santiago þar sem starfsfólk og sjálfboðaliðar taka á móti nemum eftir vegabréfseftlirlitið. Þaðan er farið á tveggja daga komunámskeið sem haldið er í nágrenni Santiago þar sem farið er yfir sögu, menningu, siði og venjur landsins.

Chilensk ungmenni eru óformleg í klæðaburði, en hafa ber í huga að Chile er langt og stórt land og þurfa nemar í norðurhluta Chile að hafa hlýrri föt meðferðis þar sem húsin eru ekki hituð upp eins og gert er hérna á Íslandi. Í frítíma sínum hittast chilensk ungmenni heima hjá vinum og vandamönnum, fara á kaffihús eða skella sér í bíó.

Í Chile er hádegismaturinn aðalmáltíð dagsins og er það ýmist kjöt eða fiskur með hrísgrjónum. Um 17-18 er svo boðið upp á kaffi og smáræði með því. Ef hádegismatnum var sleppt er kvöldmatur borðaður í kringum 20-21 í staðinn.

Skólaárið í Chile byrjar í febrúar og lýkur í desember. Nemar fara í skólann frá mánudegi til föstudags frá 8:00 til 16:00. Margir skólar eru með langt hádegishlé, eða frá 12:00-14:30. Nemar munu koma til með að vera í skólabúningum og bera nemar kostnað af því sem er um 170 dollarar.

Í Chile er talað um að nemar þurfi um 12.000 krónur í vasapening á mánuði.

Vissir þú að…
...Í Chile búa um 15 milljónir manna og opinbert tungumál er spænska
...80% Chile búa eru kaþólskrar trúar
...Gjaldmiðillinn í Chile er Peso

ATH að frekari upplýsingar eru að finna í bæklingnum hérna til hliðar