Lýsing á dvöl
| Lengd dvalar | Byrjun | Lok | Verð | Hámarksaldur við brottför |
|---|---|---|---|---|
| Ársdvöl | Júlí | Júlí | 1.100.000- | 17,4 ára |
Saga Kína er yfir 5000 ára gömul og eru Kínverjar eðlilega mjög stoltir af henni. Landið er það þriðja stærsta í heiminum (á eftir Rússlandi og Kanada) og er íbúafjöldi landsins um fimmtungur jarðarbúa.
AFS í Kína hefur verið starfrækt frá árinu 1982 og er í samstarfi við menntamálaráðuneyti Kína til þess að tryggja nemum bestu fáanlegu menntunina í landinu. Margir sjálfboðaliðar starfa fyrir samtökin og er þeim skipt upp í deildir eftir svæðum.
Flogið er til Peking, höfuðborg Kína þar sem sjálfboðaliðar og starfsfólk taka á móti nemum eftir vegabréfsefltirlit. Þaðan er haldið á komunámskeið sem mun standa yfir í viku. Á námskeiðinu er farið yfir siði, venjur og menningu landsins ásamt því að nemar fá kínversku kennslu.
Kínverjar eru stoltir af sögu sinni og er mikil virðing borin fyrir þeim eldri. Ekki er því óalgengt að afar og ömmur búi inni á heimilum. Mikil áhersla er lögð á menntun og mega nemendur búast við því að þurfa að leggja mikið á sig við námið. Fósturforeldrar vilja vita um ferðir nema, hvert sé verið að fara, með hverjum og hvenær komið sé heim. Kínversk ungmenni eru óformleg í klæðaburði en við sérstök tilefni ber að hafa meðferðis fínni föt.
Kínverjar borða mikið af núðlum, hrísrjónum og grænmeti en nútíma skyndibitastaðir eru einnig vinsælir á meðal ungmenna.
Skólaárið hefst í byrjun september og lýkur í lok júlí. Dagurinn hefst venjulega frá 7:30 og lýkur um 16:00-16:30. Í venjulegum bekk eru í kringum 35-50 nemar og munu nemar koma til með að þurfa að ganga í skólabúningum. Þar sem AFS í Kína er í samstarfi við allra bestu skólana í Kína, er ætlast til þess að nemendur standi sig vel í skólanum.
Daglegt líf kínverskra ungmenna snýst því mikið um lærdóm, en þegar tími gefst til fara þeir í bío, heimsækja vini eða stunda einhvers konar íþróttir.
Vissir þú að…
...Kína er 90 sinnum stærra en Ísland
...Opinbert tungumál Kína er Mandarín, en einnig eru margar aðrar málýskur talaðar
...Gjaldmiðill Kína er Yan
...Þjóðhátíðardagur Kína er 1.október
ATH að frekari upplýsingar eru að finna í bæklingnum hérna til hliðar
