Subpage-banner-27
Veljið annað land

Argentína

Focuson-1

Lýsing á dvöl

Lengd dvalar Byrjun Lok Verð Hámarksaldur við brottför
Ársdvöl Ágúst Júlí 1.250.000- 18,0 ára
Hálfsársdvöl Febrúar Júlí 1.250.000- 18,0 ára
Hálfsársdvöl Febrúar Júlí 18,0 ára

Argentína er áttunda breiðasta land heims og nær yfir mest allan syðri hluta Suður-Ameríku. AFS dvöl þar í landi getur því verið mjög fjölbreytileg og geta nemendur átt von á því að búa í sveit jafnt sem borg.

AFS í Argentínu hefur verið starfrækt frá árinu 1955 og koma árlega 180 skiptinemar þangað til að dvelja hjá argentískri fjölskyldu og ganga í argentíska skóla. AFS er skipt upp í deildir og eru 43 deildir í Argentínu (svæðaskipt).

AFS nemar fljúga til Ezeiza, sem er alþjóðaflugvöllurinn rétt utan við Buenos Aires. Þar taka sjálfboðaliðar og starfsfólk á móti nemunum og fara með þá á komunámskeið í 2-3 daga sem haldið verður rétt fyrir utan höfuðborgina. Að námskeiði loknu er farið til fósturfjölskyldnanna, ýmist í rútu eða með flugvél.

Á meðan á dvölinni stendur verða auk komunámskeiðs, “6 week camp” og lokadvöl. Einnig býður AFS upp á ferð til að sjá frægu Iguazu fossana (kostar aukalega). Hver deild fyrir sig er svo með skipulagt félagslíf á vegum sjálfboðaliðanna.

Argentískir unglingar eyða miklum tíma með vinum sínum og geta nemendur átt von á því að “persónulegt svæði” þeirra minnki um helming! Argentínumenn halda fast í gamlar hefðir og fjölskyldan borðar saman hádegismat eftir eða fyrir skóla. Báðir foreldrar vinna yfirleitt úti og koma heim í hádegismat og “siestu”.

Skólarnir eru ýmist frá 7-12 eða 13-18 og geta nemendur þurft að ganga eða taka rútu í skólann. Sum staðar þurfa nemendur einnig að vera í skólabúningum.

Vissir þú að…
...Tangó dansinn kemur frá Buenos Aires
...Fótboltaguðinn Diego Armado Maradono er argentískur
...Argentínumenn borða að meðaltali 70 kíló af nautakjöti ár hvert
...Argentína á þrjá Nóbelsverðlaunahafa
...Argentínumenn eru mjög vingjarnlegir og hafa mikinn áhuga á útlendingum

ATH sjá frekari upplýsingar í bæklingnum hérna til hliðar