Lýsing á dvöl
| Lengd dvalar | Byrjun | Lok | Verð | Hámarksaldur við brottför |
|---|---|---|---|---|
| Ársdvöl | Júlí | Júní | 1.030.000- | 18,6 ára |
Danmörk er minnsta landið á Norðurlöndunum og er íbúafjöldinn um 5.3 milljónir manna. Af þeim búa um 1.4 milljónir manna í höfuðborginni Kaupmannahöfn eða í nágrenni við hana. Landið samanstendur af 406 eyjum og er landið lágt og flatt sem hentar einkum vel til landbúnaðar.
AFS í Danmörku hefur verið starfrækt frá árinu 1957 og eru um 2000 sjálfboðaliðar hjá samtökunum sem starfa í 50 deildum í Danmörku, Grænlandi og Færeyjum.
Flogið er til Kaupmannahafnar þar sem sjálfboðaliðar og starfsfólk taka á móti nemum. Farið er á þriggja daga komunámskeið í grenndinni þar sem nemar fá tækifæri til að hitta aðra AFSara og læra um danska siði og venjur. Að því loknu fara nemar til sinna svæða og hitta fósturfjölskyldur sínar.
Á meðan á dvölinni stendur verða auk komunámskeiðs, “6 week camp” og lokanámskeið. AFS sjálfboðaliðar í hverri deild sjá svo um að skipuleggja félaglíf fyrir AFSara.
Danir eru ekki ósvipaðir Íslendingum með það að báðir foreldrar eru útivinnandi. Fjölskyldan tekur öll þátt í heimilisverkunum og geta nemendur átt von á því að þurfa að aðstoða við að leggja á borð, aðstoða við matseldina, vaska upp og búa um rúmið sitt á morgnana. Dönsk ungmenni eru frjálsleg í klæðaburði, en þó ber að koma með fínni klæðnað sem oft er notaður við sérstök tækifæri. Einnig ber nemum að hafa í huga að klæða sig eftir veðri, rétt eins og á Íslandi!
Skólaárið í Danmörku byrjar í ágúst og endar í júní. Skólarnir byrja yfirleitt um 8 og enda í kringum 15. Vikufrí er gefið um miðjan október, tveggja vikna jólafrí, vikufrí um miðjan febrúar og tveggja vikna páskafrí. Allir skólar i Danmörku eru fyrir bæði kynin og ekki er notast við skólabúninga.
Talað er um að nemendur þurfi 2000 dollara í vasapening fyrir allt árið. Það er í kringum 13.000 krónur á mánuði.
Vissir þú að…
...Hið gómsæta “Smörrebröd” er frá Danmörku
...Danmörk er konungsríki sem samanstendur af Danmörku, Grænlandi og Færeyjum
...Hæsti tindur Danmerkur er 173 metrar
ATH að ferkari upplýsingar eru að finna í bæklingnum hérna til hliðar
