Subpage-banner-27
Veljið annað land

Dóminíska lýðveldið

Focuson-15

Lýsing á dvöl

Lengd dvalar Byrjun Lok Verð Hámarksaldur við brottför
Ársdvöl Ágúst Ágúst 1.110.000- 18,1 ára

Dóminíska Lýðveldið er önnur stærsta eyja Karabíahafsins og er landfræðilega mjög fjölbreytt. Há fjöll, djúpir dalir, regnskógar, eyðimerkur, hvítar stendur og sjór er meðal annars það sem Dóminíska Lýðveldið hefur upp á að bjóða.

AFS í Dóminíska Lýðveldinu hefur verið starfrækt frá árinu 1962 og koma árlega um 60 nemar frá yfir 14 löndum til þess að vera skiptinemar í landinu. Fjöldi sjálfboðaliða starfa hjá samtökunum og er þeim skipt í 8 deildir eftir landssvæðum.

Flogið er til höfuðborgarinnar Santo Domingo þar sem starfsfólk og sjálfboðaliðar taka á móti nemum eftir að farið hefur verið í gegnum vegabréfseftirlit. Þaðan er svo farið á komunámskeið í grenndinni þar sem farið er yfir sögu, menningu, siði og venjur í Dóminíkanska Lýðveldinu.

Dóminíkanar eru miklir fjölskyldumenn og eru fjölskyldur oft á tíðum mjög nánar. Ekki er ólíktlegt að börn búi hjá foreldrum sínum fram að giftingu. Faðir hemilisins er yfirleitt sá sem ræður og reglur hans ber að virða. Dóminískir foreldrar vilja fá að vita um ferðir barna sinna og með hverjum þau eru hverju sinni. Þeir eru miklir snyrtipinnar og er ætlast til að allir fari í sturtu a.m.k. tvisvar sinnum á dag. Ekki eru örbylgjuofnar, uppþvottavélar eða loftræstingar á hverju heimili og ber nemum að virða og skilja það.
Dóminikönsk ungmenni eru óformleg í klæðaburði en nemar ættu að taka fínni föt meðferðis við sérstök tækifæri.

Skólaárið byrjar í september og endar í júní. Skólinn er frá 8 til 13 á daginn og munu allir nemar á vegum AFS fara í einkarekna skóla. Þar þurfa nemendur að ganga í skólabúningum sem skiptinemar bera kostnað af, eða í kringum 100 dollara.

Vissir þú að …
...Það búa yfir 7 milljón manns í Dóminíska Lýðveldinu
...Landið fékk sjálfstæði 1966
...Cristopher Columbus nam land við eyjuna þann 5. desember 1492

ATH að frekari upplýsingar eru að finna í bæklingnum hérna til hliðar