Subpage-banner-27
Veljið annað land

Egyptaland

Focuson-17

Lýsing á dvöl

Lengd dvalar Byrjun Lok Verð Hámarksaldur við brottför
Ársdvöl September Júlí 950.000 17,0 ára

Egyptaland er það land sem á sér hvað lengstu sögu af þeim löndum sem AFS býður upp á. Píramídar og unaðsleg hof hafa laðað að ferðamenn víðs vegar um heiminn frá örófi alda. Egyptaland nú til dags einkennist því af skemmtilegu samspili á milli gamalla hefða og nútíma lifnaðarháttum.

AFS í Egyptalandi hefur verið starfrækt frá árinu 1960 og hafa hýst yfir 700 skitpinema frá upphafi.

Flogið er til Cairo þar sem starfsfólk AFS tekur á móti nemum, vel merkt í eldrauðum AFS bolum. Þaðan er farið á komunámskeið sem stendur yfir í tvo til þrjá daga. Þar verður farið yfir siði og menningu landsins ásamt því að slaka á eftir ferðalagið og hitta aðra AFSara. Að námskeiði loknu fara nemendur svo til fósturfjölskyldna sinna.

Daglegt líf í Egyptalandi snýst mikið um fjölskylduna og skiptir hún Egypta miklu máli. Klæðaburður Egypta er mjög íhaldssamur og má t.d. ekki sjást i axlir kvenna. Það færist þó í vöxt að konur séu vestrænni í klæðaburði, en er það ekki vel séð alls staðar. Margar egypskar fjölskyldur eru meðlimir í “Nadi” en það eru klúbbar þar sem hægt er að stunda íþróttir eða annars konar áhugamál.

Nemendur eru hvattir til að fjarlægja alla eyrnalokka og annað skart áður en haldið er til Egyptalands, sem og að huga vel að því hvernig föt þau ætli að taka með sér.

Egyptar byrja daginn á að fá sér léttan morgunverð “foul/falafel”. Hádegismaturinn er stærsta máltíð dagsins sem er fylgt á eftir með “siestu” og svo er kvöldmaturinn frekar léttur.

Skiptinemar fara venjulega í einkaskóla sem sérhæfa sig í tungumálum. Sumt er kennt á arabísku en annað á ensku. Skólaárið er frá september til maí og er kennt frá 8 til 15.

Vissir þú að…
...Egyptar töldu að það væri góðs viti að ganga inn í hús með vinstri fótinn fyrst
...Kleópatra var ekki egypsk, hún var grísk
...Upphaflega voru Píramídarnir hvítir en þeir breyttu um lit með tímanum

ATH frekari upplýsingar eru að finna í bæklingnum hérna til hliðar