Subpage-banner-27
Veljið annað land

Finnland

Focuson-19

Lýsing á dvöl

Lengd dvalar Byrjun Lok Verð Hámarksaldur við brottför
Ársdvöl Ágúst Júní 950.000 18,8 ára

Finnland er land í Norður Evrópu og á landamæri að Svíþjóð, Noregi og Rússlandi. Bæði Svíar og Rússar hafa ráðið yfir landinu og má því finna áhrif áðurtalinna landa í menningu Finna. Veður er fremur milt, en getur verið kalt yfir vetrartímann. Meðalhiti í janúar er í kringum -3,6c en 18,9 í júlí.

AFS í Finnlandi hefur verið starfrækt frá árinu 1948 og starfa um 1800 sjálfboðaliðar í 15 deildum víðs vegar um landið. Árlega koma um 120 nemar til landsins frá yfir 30 löndum.

Flogið er til höfuðborgarinnar Helsinki þar sem starfsfólk og sjálfboðaliðar taka á móti nemum. Þeir sem verða miðsvæðis eða norðanlega í Finnlandi ferðast á sín svæði samdægurs, en þeir sem eru annars staðar gista eina nótt í Helsinki áður en ferðalaginu er haldið áfram. Viku eftir komu er svo farið á komunámskeið sem haldið er af sjálfboðaliðum í hverri deild fyrir sig. Þar verður farið yfir siði og menningu landsins og rætt um það sem framundan er.

Finnar eru ekki ólíkir Íslendingum hvað það varðar að þeir eru feimnir og lokaðir við fyrstu kynni en eru fljótir að opna sig og eru þá mjög hlýir. Finnar eru stundvísir, bera virðingu fyrir náunganum og eru miklir fjölskyldumenn.

Ætlast er til að neminn búi um rúmið sitt og haldi herberginu sínu hreinu.
Finnsk ungmenni eru sjálfstæð, en þurfa þó að virða útivistarreglur fjölskyldunnar. Nemar lenda yfirleitt í smábæjum eða úthverfum stærri borga. Finnsk ungmenni eru óformelg í klæðaburði en við sérstök tækifæri er ætlast til að nemar séu með fínni föt meðferðis.

Skólaárið í Finnlandi hefst um miðjan ágúst og lýkur um miðjan júní. Kennsla fer fram á finnsku eða sænsku og ætlast er til að nemar leggi sig fram við að læra tungumálið. AFS borgar allar bækur og ferðir til og frá skóla.

Talað er um að nemar þurfi um 1600 dollara á ári í vasapening, en það eru um 12.000 kr á mánuði.

Vissir þú að…
...Finnland er eina landið á Norðurlöndunum sem hefur tekið upp evruna
...Í Finnlandi búa yfir 5 milljónir manna
...Þjóðhátíðardagur Finna er 6. desember
...70% landsins er vaxinn skógi

ATH að frekari uplpýsingar eru að finna í bæklingnum hérna til hliðar