Subpage-banner-27
Veljið annað land

Frakkland

Focuson-20

Lýsing á dvöl

Lengd dvalar Byrjun Lok Verð Hámarksaldur við brottför
Ársdvöl september Júlí 1.050.000 17,11 ára

Frakkland er land í Vestur-Evrópu sem einkennist af gríðarlega fjölbreyttu landslagi, flatlendi í norðri og vestri en fjallagarðar í suðaustri og suðvestri. Hæsta fjall Evrópu, Mont Blanc er til að mynda að finna í Ölpunum í suðaustri.

AFS í Frakklandi hefur verið starfrækt frá árinu 1947. Á frönsku heitir AFS “Vivre Sans Frontière” sem þýðir “að vera heimsborgari” eða “líf án landamæra”. Árlega koma um 450 nemar til landsins frá yfir 30 löndum til þess að vera skiptinemar. Fjölmargir sjálfboðaliðar starfa hjá AFS í yfir 26 deildum víðs vegar um landið.

Flogið er til Parísar þar sem sjálfboðaliðar og starfsfólk taka á móti nemum eftir að farið hefur verið í gegnum vegabréfseftlirlit. Þaðan er farið á tveggja daga komunámskeið sem er haldið í grennd við París. Á námskeiðinu er farið yfir siði, venjur og menningu landsins ásamt því að nemar kynnast öðrum skiptinemum frá öllum heimshornum.

Frakkar eru gríðarlega stoltir af móðurmáli, sögu og menningu síns lands. Nemendur geta því átt von á að þurfa að vera vel að sér í sögu og mennigu Íslands þar sem Frakkar spyrja mikið um þessa hluti.

Frökkum finnst gaman að hlægja og gera óspart grín að útlendingum sem eru að reyna fyrir sér í frönskunni . Nemar eru hvattir til að láta það ekki á sig fá, þar sem þetta er allt gert í góðlátlegu gríni og er hluti af menningu þeirra.

Flestir skiptinemar AFS lenda hjá fósturfjölskyldum sem búa í dreifbýli og eiga margar þeirra gæludýr sem búa innan dyra. Frönsk ungmenni eru óformleg í klæðaburði, en gott er að hafa með sér fínni föt fyrir sérstök tilefni.

Matur er ofarlega í huga hjá Frökkum og þegar ekki er verið að borða er verið að tala um mat! Þeir borða þrjár máltíðir á dag, morgunverð, hádegisverð og kvöldverð. Hádegismaturinn er venjulega frá 12-14 og ef að nemar komast ekki heim í mat, þá bjóða skólarnir upp á heitan mat í hádeginu. Kvöldmaturinn er svo aðalmáltíð dagsins og stendur yfirleitt frá 19-21 og þar er oftar en ekki farið yfir atburði dagsins og rætt saman. Borðsiðir eru mikilvægir í Frakklandi og er talið ókurteisi að fá sér áður en sagt er “gjörið svo vel” eða fara frá matarborðinu áður en leyfi hefur verið gefið.

Skólaárið í Frakklandi skiptist í sjö vikna annir og tveggja vikna frí er gefið í enda október, um miðjan desember, um miðjan febrúar og miðjan apríl. Skóladagurinn er frá 8 til 17/18 og fara nemar í 10. eða 11. bekk.

Talið er að nemar þurfi um 2000 evrur í vasapening yfir allt árið.

Vissir þú að…
...í Frakklandi eru yfir 40.000 “châteaux” (kastalar)
...Það eru búnar til yfir 300 gerðir af ostum í Frakklani
...Á hverjum degi eru gefnar út að meðaltali 2 nýjar matreiðslubækur

ATH sjá nánari upplýsingar í bæklingnum hérna til hliðar