Subpage-banner-27
Veljið annað land

Hong Kong

Focuson-25

Lýsing á dvöl

Lengd dvalar Byrjun Lok Verð Hámarksaldur við brottför
Ársdvöl Ágúst Júní 18,0 ára

Hong Kong er án efa eitt mest spennandi land heims. Í bland við háhýsi og nútíma byggingar hefur Hong Kong haldið í við menningu sína og skapast því skemmtilegt andrúmsloft þess nýja og gamla. Þrátt fyrir að vera bresk nýlunda frá árunum 1841-1997 eru 98% íbúa Kínverjar.

AFS í Hong Kong hefur verið starfækt frá árinu 1982. Á ári hverju koma um 30 erlendir nemar frá 10 löndum.

Flogið er til Hong Kong, en flugvöllurinn þar í landi hefur verið valinn sá besi í heiminum. Þar eru nemendur sóttir af sjálfboðalðum og starfsfólki AFS þar sem farið er með nema á þriggja daga komunámskeið. Á námskeiðinu verður farið yfir siði og menningu landsins, ásamt því að slaka á og kynnast öðrum AFSurum.

Hong Kong búar eru orkumiklir og duglegir. Þeir virða hógværð og rólegheit en þola illa mikið stress og áreiti. Þeir virða fjölskylduna mikils og þá sérstaklega eldri meðlimi fjölskyldunnar. Foreldrar í Hong Kong vernda börn sín mikið og ætlast þau til að nemar láti vita hvenær þau komi heim og hvort þeir ætli út.

Tískan í Hong Kong er ýmis konar og eru nemendur hvattir til að taka með sér létt föt fyrir sumarið en hlýrri föt fyrir veturinn.

Í Hong Kong er mikið borðað af hrísgrjónum og núðlum með kjúklingi, svínakjöti, fiski og grænmeti. Ávextir eru algengir sem sem eftirréttir, en mjólkurvörur eru ekki mjög algengar þar sem þær eru mjög dýrar.

Skólaárið byrjar í september og endar í júní. Skólar eru oft á tíðum erfiðir og ættu nemendur að búa sig undir það. Háir hælar eru ekki leyfðir í skólunum og þurfa nemendur að eiga svarta leðurskó til að nota í skólann.

Vissir þú að…
...í Hong Kong eru margar brekkur og hæðir
...Byggingarnar í Hong Kong eru margar hverjar byggðar upp á hugmyndafræðinni “Feng Shui”
...Hofin í Hong Kong eru öll byggð í brekku og snúa að sjónum

ATH frekari upplýsingar eru að finna í bæklingnum hérna til hliðar