Subpage-banner-27
Veljið annað land

Indónesía

Focuson-28

Lýsing á dvöl

Lengd dvalar Byrjun Lok Verð Hámarksaldur við brottför
Ársdvöl Ágúst Júlí 1.050.000- 18,8 ára

Indónesía er ríki í Suðaustur-Asíu sem samanstendur af yfir 17.000 eyjum í Malaja eyjaklasanum. Það er fjórða fjölmennasta ríki heims og eru um 300 þjóðflokkar sem búa á eyjunum, en einungis er búið á 6.000 af þeim . Um 500 tungumál eru töluð í Indónesíu en meirihluta íbúa eyjanna eru múslimar.

AFS í Indónesíu hefur verið starfrækt frá árinu 1956.

Flogið er til Jakarta flugvallar þar sem nemar koma til með að borga 150 dollara fyrir dvalarleyfi. Starfsfólk og sjálfboðaliðar AFS taka svo á móti nemum og farið er á fimm daga komunámskeið í grenndinni.

Indónesar eru miklir fjölskyldumenn og búa oft fjarskyldir ættingjar inni á heimilium, s.s. afar, ömmur, frændur og frænkur. Fjölskyldan skitpir þá miklu máli, sem og samfélagið sem þeir búa í. Í sumum samfélögum er ekki rennandi vatn eða rafmagn. Í Indónesíu þarf einnig að fara úr skónum áður en gengið er inn í hús, rétt eins og á Íslandi! Óbein samskipti tíðkast víðast hvar og ber nemum að hafa í huga að maður spyr ekki einhvern beint um eitthvað eins og gengur og gerist á Íslandi.

Indónesk ungmenni klæða sig á vestrænan hátt í borgum, en í smærri borgum og bæjum er klæðaburðurinn heldur hefðbundnari. Nemar eru hvattir til að hafa meðferðis fínni klæðnað við einstök tækifæri.
Indóneskur matur er vel þekktur um allan heim og er aðalmáltíð dagsins hádegismaturinn.

Mikill menningarmunur er á Íslandi og Indónesíu og hérna eru nokkur atriði sem enginn kippir sér upp við á Íslandi, en er algjör ókurteisi í Indónesíu:

Krossleggja fætur og lyfta löppinni upp þegar maður fær sér sæti
Benda á einhvern með vísifingri
Koma við höfuðuð á einhverjum
Tala við einhvern með hendur á mjöðm
Beina fótum að einhverjum
Nota vinstri hendina til rétta einhverjum eitthvað eða til að borða

Vissir þú að…
...Á eyjunni Bali heita allir eitt af eftirtöldum fjórum nöfnum, Wayan, Made, Nyoman eða Ketut
...Indónesía er stærsti eyjaklasi heims
...Stærsta búddahof heims, Borobudur, er á eynni Java í Indónesíu

ATH að frekari upplýsingar eru að finna í bæklingnum hérna til hliðar