Lýsing á dvöl
| Lengd dvalar | Byrjun | Lok | Verð | Hámarksaldur við brottför |
|---|---|---|---|---|
| Ársdvöl | September | Júlí | 990.000- | 17,9 ára |
| Hálfsársdvöl | 820.000- | 17,9 ára |
Ítalía er í Suður-Evrópu og liggja lönd eins og Frakkland, Sviss, Austurríki og Slóvenía að landinu. Það má því með sanni segja að Ítalía sé fjölbreytt land með mikla sögu og menningu á bak við sig.
AFS á Ítalíu hefur verið starfrækt frá árinu 1946 og þangað fara yfir 400 nemar ár hvert til skiptinemadvalar. Einnig eru um 3500 sjálfboðaliðar þar í landi sem starfa fyrir samtökin.
Flogið er til Rómar og þar taka starfsfólk og sjálfboðaliðar AFS á móti nemum og farið á svæði nálægt Róm þar sem nemar fara á komunámskeið. Þaðan fara þeir svo til fósturfjölskyldnanna sinna.
Á meðan á dvölinni stendur verða auk komunámskeiðs, “6 week camp” og lokanámskeið. AFS samanstendur af deildum og sjá sjálfboðaliðar í hverri deild um að skipuleggja félaglíf fyrir AFSara
Skólaárið á Ítalíu byrjar í september og endar í júní. Tveggja vikna frí er gefið um jólin og vikulangt frí um páskana.
Ítalir eru miklir matmenn og eigum við mat eins og pasta og pizzu þeim að þakka! Ítalir borða þrisvar sinnum á dag og er hádegismaturinn stærsta máltíð dagsins.
Á hverju ári fara um 17 íslenskir nemar til Ítalíu og er það án efa eitt af vinsælustu löndunum á meðal skiptinema.
Vissir þú að…
...Páfagarður er sjálfstætt ríki
...Ítalía skiptist í tuttugu héruð sem hvert hvefur sinn höfuðstað
...Ítalir fá sér sætabrauð í morgunmat
...Ítalir borða pasta a.m.k. fjórum sinnum í viku
