Subpage-banner-27
Veljið annað land

Austurríki

Focuson-3

Lýsing á dvöl

Lengd dvalar Byrjun Lok Verð Hámarksaldur við brottför
Hálfsársdvöl Janúar Júlí 18.0 ára
Ársdvöl september júlí 18

Alpafjöllin dekka um tvo þriðju Austurríkis og eru Vín og Salzburg á meðal fallegri borga Evrópu. Landið liggur hvergi að sjó og liggur það að 7 löndum, Þýskalandi, Ítalíu, Tékklandi, Ungverjalandi, Slóveníu, Sviss og smáríkinu Lichtenstein.

AFS í Austurríki hefur verið starfrækt frá árinu 1949 og starfa yfir 500 sjálfboðaliðar fyrir samtökin. Á hverju ári koma um 120 erlendir nemar til landsins frá yfir 30 löndum.

Flogið er til Vienna þar sem sjálfboðaliðar frá Österrich deildinni taka á móti nemunum. Þaðan er farið á komunámskeið í 2-3 klst. fjarlægð frá flugvellinum. Á komunámskeiðinu verður farið yfir austurríska siði og menningu og mun námskeiðið standa yfir í 4-5 daga.

Þó svo að Austurríkisbúar tali allir þýsku, geta siðir verið ólíkir á milli svæða. Þeir elska að læra um aðra og eru mjög gestrisnir. Austurrísk ungmenni eru frjálsleg í fasi og klæða sig frekar óformlega. Gott er þó að hafa regnföt meðferðis þar sem rignir mikið yfir sumartímann.
Hefðbundin austurrísk fjölskylda borðar að öllu jöfnu saman og snakk eða nart á milli mála þekkist ekki.

Skólaárið byrjar í september og endar í júlí. Nemar fara iðjulega í 11.bekk með samnemendum sínum sem eru 16-17 ára. Skólinn byrjar klukkan 8 og er búinn um tólf, mánudaga-laugardaga (þó svo að stundum sé gefið frí á laugardögum). Jólafrí er í desember, vetrarfrí í febrúar og páskafrí.

Austurríki er frekar dýrt land og er ráðlagt að hafa um 100 evrur á mánuði í vasapening.

Vissir þú að…
...Austurríki er einungis 580 km langt og 280 km á breidd
...í Austurríki búa um 90 íbúar á hvern ferkílómetra
...Wiener Schnitzel kemur frá Austurríki
...Austurríki fylgir hlutlausri utanríkisstefnu

ATH sjá frekari upplýsingar í bæklingnum hérna til hliðar