Lýsing á dvöl
| Lengd dvalar | Byrjun | Lok | Verð | Hámarksaldur við brottför |
|---|---|---|---|---|
| Ársdvöl | Júlí | Júní | 1.350.000- | 18,0 ára |
| Ársdvöl | Janúar | Desember | 1.350.000- | 18,0 ára |
Nýja Sjáland er í Suður-Kyrrahafi og er í raun lengra frá Ástralíu en margan grunar. Landið eru skipt í tvær eyjur, Norðurey og Suðurey. Höfuðborgin heitir Wellington og er á Norðurey.
AFS hefur verið starfrækt á Nýja Sjálandi frá árinu 1947 og eru um 1000 sjálfboðaliðar í 39 deildum sem vinna fyrir AFS. Ár hvert koma um 600 nemar frá 34 löndum.
Flogið er til Auckland (Norðurey) þar sem nemar eru sóttir af sjálfboðaliðum og starfsfólki. Þaðan er farið á komunámskeið rétt utan við Auckland þar sem farið er yfir helstu atriðin sem hafa þarf í huga þegar maður er nýr í landinu.
Á meðan á dvölinni stendur verða auk komunámskeiðs, “6 week camp” og lokanámskeið. AFS samanstendur af deildum og sjá sjálfboðaliðar í hverri deild um að skipuleggja félaglíf fyrir AFSara
Nýsjálendingar eru afslappaðir og óformlegir í fasi og finnst gott að vera heima með fjölskyldu og vinum. Margar fjölskyldur í Nýja Sjálandi eiga gæludýr og geta nemar átt von á því að lenda hjá fjölskyldu sem eiga slíkt.
Skiptinemar fara í ríkisrekna skóla á Nýja Sjálandi og þurfa flestir að ganga í skólabúning (kosta í kringum 150 dollara). Skólaárið er frá janúar til byrjun desember og fara nemar í 12. eða 13. bekk (16-18 ára).
Nýsjálensk ungmenni eru mjög virk og stunda mörg þeirra einhvers konar íþróttir og útivist.
-Vissir þú að…
...Nýja Sjáland heitir Aotearoa á máli maóría
...Það búa 4 milljónir manns í Nýja Sjálandi
...Meðalhitinn á sumrin er 17c en 8c á veturnar
...Sumarið byrjar í desember en veturinn í júní
ATH Sökum þess að fjölmargar fjölskyldur í Nýja Sjálandi eru með gæludýr inni á heimilum sér AFS í Nýja Sjálandi sér ekki fært um að hýsa nema sem hafa ofnæmi fyrir dýrum.
