Subpage-banner-27
Veljið annað land

Bandaríkin

Focuson-52

Lýsing á dvöl

Lengd dvalar Byrjun Lok Verð Hámarksaldur við brottför
Ársdvöl Ágúst Júní 1.350.000- 18,6 ára
Hálfsársdvöl Janúar Júní 1.110.000- 18,6 ára

Bandaríkin er land í Norður-Ameríku og samanstendur það af 50 ríkjum. AFS dvöl í þar í landi er því stórkostlegt ævintýri og geta nemendur átt von á því að búa í fjöllum í Alaska, sveitum Iowa, vötnum Minnesota, á ströndum Los Angeles og öllu þar milli!

AFS í Bandaríkjunum sendir út 1500 nema til 42 landa ár hvert, en tekur á móti yfir 2700 nemum. Ásamt starfsfólki á skrifstofum víðs vegar um landið starfa um 10.000 sjálfboðaliðar hjá samtökunum.

Flogið er á fimm flugvelli, New York, Houston, Chicago, Los Angeles og Seattle. Við komuna til Bandaríkjanna eru nemendur sóttir af starfsfólki og sjálfboðaliðum og þaðan fara þeir til sinna sinna svæða á komunámskeið.

Á meðan á dvölinni stendur verða auk komunámskeiðs, “6 week camp” og lokanámskeið. AFS samanstendur af deildum og sjá sjálfboðaliðar í hverri deild um að skipuleggja félaglíf fyrir AFSara.

Nemendur búa hjá fósturfjölskyldum, fara í bandaríska skóla “high school” og eiga að aðlagast bandarísku samfélagi.

Daglegt líf unglinga í Bandaríkjunum snýst um skóla, fjölskyldu og vini. Margir unglingar taka þátt í félagslífi að skóla loknum, s.s. íþróttum, leiklist, kór, samfélagsvinnu, o.s.frv. Þar sem

Margir rekja upp stór augu þegar þeir panta sér mat á veitingahúsi í Bandaríkjunum, en skammtarnir þar í landi eru stærri en við Evrópubúar eigum að venjast. Heimamenn bregðast við því með því að fá svokallaðan “doggy-bag” og taka afganginn með sér heim!

Vissir þú að….

...Washington DC er höfuðborg Bandaríkjanna
...Þjóðhátíðardagurinn er 4.júlí
...Stærsta fylkið er Alaska
...Minnsta fylkið er Rhode Island
...Hæsti tindur landsins er Mt McKinley, Alaska
...Lægsti dalur landsins er Death Valley, California

ATH að frekari upplýsingar eru að finna í bæklingnum hérna til hliðar

Að tengjast AFS

Reynslusögur frá skiptinemum:

Íris Gunnarsdóttir 2007-2008

Ég valdi Bandaríkin af nokkrum ástæðum en aðalega útaf körfuboltanum þar sem körfubolti er mitt helsta lif mætti ég segja. Ég vildi bara kynnast einhverju öðru og líka láta einn af mínum draumum rætast, fara a NBA leik!
Fóstur mamma mín vakti mig og sagði að við ætluðum að drífa okkur niður í Atlanta sem er höfuðborg Georgiu. Eg vissi ekkert hvað við vorum að fara gera. Við tókum lest og vorum í svona 30 mínútur á áfangastað. Við löbbuðum upp rúllustiga þegar við komum úr lestinni og þegar ég kom upp rúllustigann sá ég RISA hús sem heitir ‘philips arena’ ég vissi náttúrlega ekkert hvað þetta var labbaði bara inn og nei nei ég hélt ég ætlaði ekki lengra! sá bara fullt af klappstýrum, búðum sem hægt var að kaupa körfuboltadót og svona. Löbbuðum síðan þar sem sætin okkar voru. Þegar við löbbuðum upp stigan sé ég bara ljós, maginn minn var a fullu og munnurinn minn galopinn, eg trúði þessu bara ekki. Þarna var ég, lítill íslendingur i Atlanta Hawks höllinni. Sá auðvitað strax að ég væri að fara á NBA leik þar sem þangað var komið. Ég var ekkert smá ánægð, brosti bara allan tímann, við vorum líka i geðveikum sætum. Þetta var engin smá upplifun, þarna þennan dag þá rættist einn af mínum draumum og ég get svo sagt að ég á aldrei eftir að gleyma honum. Þar sem ég kem úr mikilli körfubolta fjölskyldu voru allir að öfunda mig, og ég var ekkert smá glöð að loksins einn af mínum stærstu draumum hafi ræst.
Eftir þetta bara alla dagana sem ég hef verið hérna i Ameríku er ég ekkert smá þakklát að hafa fundið ykkur hjá AFS og fyllt út umsókn og drifið mig út. Þetta er einstakt tækifæri sem ég legg til að allir ættu að prufa, ég mun svo aldrei sjá eftir þessu og hver veit, það leynist alltaf eitthvað nýtt sem þú gerir á hverjum degi, ég get lofað því!

Usa1_copy