Subpage-banner-27
Veljið annað land

Belgía - frönskumælandi

Focuson-5

Lýsing á dvöl

Lengd dvalar Byrjun Lok Verð Hámarksaldur við brottför
Ársdvöl Ágúst Júlí 990.000- 18,6 ára

Belgar í Suður-Belgíu tala frönsku og Belgar í Norður-Belgíu taka flæmsku, en landið liggur að mörkum rómönsku og germönsku Evrópu. Það má því ætla að menningin í frönskumælandi Belgíu sé suðrænni en sú í norðri. Höfuðborg Belgíu, Brussel, hefur oft verið nefnd höfuðborg Evrópu, en nokkrar alþjóðastofnanir eiga aðsetur þar, s.s. ESB og NATO.

AFS í Belgíu hefur verið starfrækt frá árinu 1948 og skiptist í frönskumælandi Belgíu og flæmskumælandi Belgíu.

Flogið er til Brussel þar sem sjálfboðaliðar og starfsfólk AFS tekur á móti nemunum. Við komuna er farið á hálfs dags komunámskeið þar sem nemum gefst tækifæri að hitta aðra AFSara og læra um siði og menningu Belga. Þaðan fara nemar svo á sín svæði og hitta fósturfjölskyldur sínar.
Mánuði seinna verður svo annað námskeið haldið þar sem farið verður betur í saumana á því sem talað var um á komunámskeiðinu sem og umræður um aðlögun skiptinemanna.

Þökk sé fjölbreytninni í belgískri menningu eru Belgar oft taldir mjög sveigjanlegir, þolinmóðir, vingjarnlegir og opins hugar. Þeir eru stundum feimnir við fyrstu kynni en opna sig fljótt. Belgar eru nánir fjölskyldu sinni, en leggja ekki mikið upp úr að kynnast nágrönnum sínum! Flestir nemar lenda í smábæjum þar sem þeir þurfa að nota almenningssamgöngur, en þær eru mjög öruggar. Belgískar fjölskyldur borða og búa til matinn saman og þurfa nemendur að læra belgíska borðsiði af fjölskyldum sínum.

Þegar byrja á í skólanum þurfa nemar að hitta skólastjórann og kynna honum stundatöflu sína. Skólinn byrjar klukkan 8 og er búinn klukkan 16, en skólaárið er frá september til júlí.

Nemar eiga kost á því að fara í frönskutíma sem kosta í kringum 150 evrur. Vasapeningur á mánuði er áætlaður um 120 evrur.

Vissir þú að…
...Helmningur Belga eiga gæludýr
...15% Belga eru innflytjendur
...Hæsti maður Evrópu er Belgi, Alain Delaunois 2,3 m
...97% Belga eru með kapalsjónvarp

ATH sjá frekari upplýsingar í bæklingnum hérna til hliðar