Subpage-banner-27

Sumardvöl 2010

Tæland – 4 vikna skóladvöl


Þátttakandinn dvelur hjá fósturfjölskyldu og sækir skóla þar sem lögð er áhersla á kennslu í tælensku. Dvölin hefst með tveggja daga námskeiði í Bangkok.
Umsóknarfrestur til 30. maí.

Dvölin er frá 20. júlí til 17. ágúst. Aldur 15-18 ára.
Verð án flugs: 190.000 kr.

Tyrkland – 6 vikna sumardvöl


Þátttakandinn dvelur hjá fósturfjölskyldu. Hluti dvalarinnar er við ströndina í sumarhúsi fjölskyldunnar. Dvölin byrjar á námskeiði í Istanbul.
Umsóknarfrestur til 1. mars.

Dvölin er frá 26. júní til 8. ágúst. Aldur 15-18 ára.
Verð án flugs: 225.000 kr.

Tyrkland – 6 vikna sumardvöl


Þátttakandinn dvelur hjá fósturfjölskyldu. Þess á milli er unnið sem aðstoðarleiðbeinandi (undirbúningsnámskeið í einn dag) í sumar- og ævintýrabúðum fyrir 7-12 ára krakka, English Adventure Camp for Children við Bolu Aladag, um 100 km austan Istanbúl. Þá er dvalið í sex daga í International Youth Camp, sem eru sumarbúðir fyrir unglinga í Antalya – Manavgat á suðurströnd Tyrklands. Dvölin hefst með námskeiði í Istanbúl. Að auki er hægt að bæta við (ekki innifalið í verði) vindbrettabúðum í Cesme – Alacati á vesturströndinni ekki langt frá Izmir.
Umsóknarfrestur til 1. mars.

Dvölin er frá 26. júní til 8. ágúst. Aldur 15-18 ára.
Verð án flugs: 225.000 kr.

Ekvador – 7 vikna dvöl


Þátttakandi dvelur hjá fósturfjölskyldu. Dvölin byrjar á komunámskeiði í Quito.
Umsóknarfrestur til 30. apríl.

Dvölin er frá 25. júní til 11. ágúst. Aldur 15-18 ára.
Verð án flugs: 220.000 kr.

Chile – 7 vikna dvöl


Þátttakandi dvelur hjá fósturfjölskyldu. Dvölin byrjar á komunámskeiði í Santiago.
Umsóknarfrestur til 30. apríl.

Dvölin er frá 25. júní til 16. ágúst. Aldur 16-18 ára.
Verð án flugs: 190.000 kr.

Brasilía – 4 vikna fótboltanámskeið


Fyrstu 7 dagana dvelur þátttakandinn hjá fósturfjölskyldu í Sao Paulo og tekur þátt í viðburðum sem skipulagðir eru sérstaklega fyrir hópinn til að kynnast Brasilíu betur.
Næstu 2-3 vikurnar dvelur hópurinn á 5 stjörnu hóteli sem er hluti af stóru fótboltaæfingasvæði. Á hverjum degi er æfður fótbolti undir leiðsögn reyndra þjálfara.
Þátttakendur velja hvort þeir vilja 2 eða 3 vikur í fótboltaþjálfun. Þeir sem velja 2 vikur dvelja síðustu vikuna hjá fósturfjölskyldu.
Að auki fá þátttakendur 10 klst. kennslu í portúgölsku og menningarfræðslu og fara á fótboltaleik (landsliðsleik sé það í boði).
Umsóknarfrestur er til 5. júní.

Dvölin er frá 4. júlí til 31. júlí. Aldur 14-18 ára.
Verð án flugs: 375.000 kr.

Japan – 6 vikna japönskunámskeið


Þátttakandinn dvelur hjá fósturfjölskyldu og stundar nám í japönsku, 80 klst.
Umsóknarfrestur er til 31. mars.

Dvölin er frá 23. júní til 4. ágúst. Aldur 15-18 ára.
Verð án flugs: 375.000 kr.

Túnis – fornleifauppgröftur í 3 vikur


Annað árið í röð býður AFS upp á vinnu (work camp) við fornleifauppgröft á Kelibia-svæðinu á Cap Bon-skaga. Verkefnið er stutt af menningar- og menntamálaráðuneyti Túnis. Cap Bon-skagi er í norðausturhluta Túnis og snýr að Sikiley. Kelibia er um 100 km suðaustur af höfuðborginni, Túnis.

Unnið er að uppgreftrinum á morgnana undir stjórn prófessors við “National Institute of Heritage” en seinnipart dags er farið í ýmsar ferðir og þátttaka í margvíslegum viðburðum. Þetta er einstakt tækifæri til að kynnast sögu og landafræði þessa áhugaverða Afríkulands.

Á síðasta ári fóru þrír á vegum AFS á Íslandi til Túnis og unnu að fornleifauppgreftri á Cap Bon-skaga.
Umsóknarfrestur er til 15. júní.

Dvölin er frá 11. júlí til 1. ágúst. Aldur 18 ára og eldri – ekkert aldurshámark.
Verð án flugs: 170.000 kr.

Afs-line