Ragnar Þorvarðarson, skiptinemi í Japan 2002-2003.
Eftir skiptinemaárið mitt hef ég verið leiðbeinandi á fjölmörgun námskeiðum með AFS, bæði fyrir íslenska og erlenda skiptinema. Ég verð alltaf jafn ánægður og stoltur þegar ég heyri af upplifun annarra skiptinema, ungt fólk sem upplifir heiminn með eigin augum. Fólk lærir ótrúlega mikið um sjálft sig, land og þjóð af því að vinna með AFS, bæði þeir sem fara út og líka þeir sem taka skiptinema inn á sitt heimili.
Sigríður Sigurðardóttir (Sirrý), tengiliður AFS á Norðurlandi.
Að vinna sem sjálfboðaliði með AFS hefur gefið mér heilmikið. Við tókum fyrsta skiptinemann 1996, frábæran strák frá Ástralíu, og þar með fór boltinn að rúlla. Síðan þá hef ég hýst tvær fínar stelpur í viðbót. Með þessum krökkum hefur heimurinn skroppið saman um mörg númer. Auk þess hef ég verið trúnaðarmaður nokkurra nema. Síðustu 6-7 ár hef ég svo mest verið í því að finna fósturfjölskyldur fyrir erlenda nema á Norðurlandi. Við höfum kynnst frábæru fólki í gegnum AFS, bæði ótrúlega duglegum sjálfboðaliðum sem hafa tekið marga skiptinema, og ungu fólki sem hefur ódrepandi áhuga á að hjálpa öðrum unglingum að öðlast sömu reynslu og það sjálft með nýjum fjölskyldum og nýrri heimssýn, hvort sem það eru íslenskir eða erlendir skiptinemar.
Rannveig Albína Norðdahl, varaformaður Reykjavíkurdeildar AFS 2006-2007
Ég var skiptinemi í Þýskalandi 2002-2003 og hýsti skiptinema frá Þýskalandi 2005-2006. Að vinna með AFS hefur gefið mér tækifæri til að endurupplifa skiptinemaárið mitt í gegnum erlendu nemana sem koma hingað. Það að vera sjálfboðaliði hjá AFS stuðlar að því að samtökin geti starfað og náð markmiðum sínum sem friðarsamtök. Að vera AFS-ari er alltaf gaman og gefandi :)
Ester Sigurðardóttir, skiptinemi í Perú 2004-2005.
Sjálfboðaliðastarfið hér heima hefur gefið mér heilmikið, að sjá krakka fá tækifæri bæði til þess að koma hingað og fara að skoða heiminn er alveg frábær tilfinning.

