Subpage-banner-27

13/1/2010 - Fjöldi kynninga í skólum víða um landið

Um þessar mundir er mikið að gera hjá sjálfboðaliðum og starfsfólki AFS vegna kynningar á starfsemi samtakanna og að vekja athygli á þeim möguleikum sem í boði eru til dvalar erlendis með aðstoð AFS á Íslandi og ekki síður að taka við erlendum skiptinemum til dvalar hérlendis.


Í dag, miðvikudag 13. janúar, eru t.d. Eyrún Eyþórsdóttir, framkvæmdastjóri AFS á Íslandi, og Linda Gunnarsdóttir, deildarstjóri íslenskra nema, með kynningar í grunnskólunum í Fellabæ og á Egilsstöðum. Einnig eru þær með kynningu á sal í Menntaskólanum á Egilsstöðum og þá er opið hús í dag milli kl. 17 og 19 í ME. Þar er kjörið fyrir áhugasama forráðamenn og unglinga að mæta til að fá upplýsingar frá fyrstu hendi. Á morgun, fimmtudag, verða þær síðan með kynningar í Neskaupstað og á Eskifirði.

Með Eyrúnu og Lindu er ítalski sjálfboðaliðinn Andrea Pregel, sem er nýkominn til landsins til starfa á skrifstofu samtakanna í Reykjavík.

print Prentvænar

Einnig í fréttum