Subpage-banner-27

Afríka_mósambík

8/2/2010 - Sjálfboðaliðaverkefni í Maputo í Mósambík!

AFS í Suður-Afríku hefur tekið upp skiptinemasamstarf við Mósambík fyrir þetta ár. Samtökin leita að einum til tveimur reyndum AFS-sjálfboðaliðum til þess að starfa sem tengiliðir þeirra í Maputo, höfuðborg Mósambík, og aðstoða við upphaf og þróun verkefnisins þar.

Stutt starfslýsing:
  • Aðstoða við stjórn og utanumhald.
  • Ráða og þjálfa sjálfboðaliða.
  • Heimsækja og aðstoða samfélagsleg samtök.
  • Útvega stuðning við þátttakendur í samfélagsverkefnum (18-25 ára).
  • Aðstoða starfsfólk AFS þegar þörf krefur.
Kröfur:
  • 18 ára og eldri sem skilja og tala portúgölsku, ef ekki þá góð enskukunnátta, sjálfstæðir í hugsun og geta unnið upp á eigin spýtur.
  • Frumkvæði.
  • Reynsla af sjálfboðaliðastarfi innan AFS.
  • Heilsuhraustir einstaklingar (malaría er landlæg í Mósambík).
  • AFS í S-Afríku sér um flug, fæði og húsnæði.
  • Hefst eins fljótt og mögulegt er, í samráði við þá sem ráðnir verða.
  • Starfstími: 3-10 mánuðir í samráði við viðkomandi.

Þeir sem hafa áhuga sendi ferilskrá og stutt umsóknarbréf (með upplýsingum um hvenær störf geta hafist og í hve langan tíma) til: andrea.pregel@afs.org fyrir 23. febrúar 2010.

Ef þú hefur frekari spurningar hikaðu þá ekki við að hafa samband við okkur!

Ekki missa af þessu einstæða tækifæri.

print Prentvænar

Einnig í fréttum