8/3/2010 - Menningarhelgi AFS á Íslandi
Menningarhelgi AFS er árlegur viðburður sem nú fer fram 19.-21. mars. Farið verður úr Ingólfsstræti um hálfþrjú á föstudegi til Bessastaða þar sem forseti Íslands mun taka á móti okkur ef hann verður á landinu.
Eftir fund með honum verður haldið til Lýsuhóls á Snæfellsnesi þar sem gist verður alla helgina.
Á laugardegi verður farið fyrir nesið og stoppað á Djúpalónssandi þar sem fólk getur spreytt sig á steinunum Amlóða, Hálfsterkum og Fullsterkum. Farið verður í Bjarnarhöfn, á Arnarstapa o.fl. o.fl. Um kvöldið verður síðan kvöldvaka.
Á sunnudegi er heimferð um hádegið.
| Prentvænar |
