3/5/2010 - Skiptinemi í Bandaríkjunum í útvarpsviðtali vegna eldgosanna
Þegar staðarútvarpsstöð í Bandaríkjunum vantar upplýsingar um Ísland og eldgosin þar undanfarið hvert er þá best að leita? Jú, einmitt, ræða við íslenskan AFS-skiptinema sem býr á svæðinu.
Lilja Björk Bjarnadóttir frá Eiði í Grundarfirði er skiptinemi í bænum Wausau í Wisconsin. Hún var um daginn fengin í viðtal hjá WSAU-útvarpsstöðinni, sem útvarpar í Wisconsin og Michigan, til þess að fræða hlustendur um eldgosið í Eyjafjallajökli. Að sjálfsögðu snerist umræðan að hluta til um framburðinn á Eyjafjallajökull en Lilja Björk var góður fulltrúi lands og þjóðar og hefur vafalaust kveikt áhuga margra Bandarikjamanna á þessu landi elds og íss.
Hér er hægt að hlusta á viðtalið við Lilju Björk:
http://www.wsau.com/podcasts/feedback/local-afs-student-iceland-talks-about-volcano/
Myndin er af Lilju Björk þar sem hún var nýlega á Hawaii í svokölluðu “spring brake” eða sumarleyfi.
| Prentvænar |
