20/1/2010 - Haítí - Neyðaraðstoð
AFS í Dóminíska lýðveldinu og samstarfsaðili þess, The Cyber Park Foundation of Santo Domingo, hafa ýtt úr vör herferð til aðstoðar við hina hrjáðu nágranna þeirra á Haítí undir slagorðinu Haítíbúar, þið getið reitt ykkur á okkur.
Íbúar Haítí líða mikinn skort á öllum nauðsynjum og mikla angist í kjölfar hinna hrikalegu náttúruhamfara í landinu þar sem tugir þúsunda fórust í geysiöflugum jarðskjálfta fyrir einni viku og hundruð þúsunda eru slasaðir og yfir ein milljón íbúa er heimilislaus. Má fastlega reikna með að þessar tölur eigi eftir að hækka enn á næstu dögum og vikum.
Með því að fara inn á http://www.afs.org/afs_or/view/10110 og smella á International Donors getur þú lagt þitt af mörkum til hjálpar þjáðum íbúum Haítí.
AFS í Dóminíska lýðveldinu er í samvinnu við samtök jesúíta á eyjunni, El Centro Fe y Cultura Roberto Bellarmino, sem tryggir að allt framlag þitt mun verða nýtt að fullu til að lina þjáningar íbúa Haítí. Samtök þeirra hafa þegar sent fjölda bílfarma af hjálpargögnum, mat, vatni og lyfjum, frá Dóminíska lýðveldinu til Haítí. Vegna sterkra tengsla El Centro við Haíti, þar sem þau reka fjórtán skóla og félagsmiðstöðvar, mun framlagi þínu verða ráðstafað til þeirra sem mesta hafa þörfina á skjótan og skilvirkan hátt.