12/2/2010 - Nýr formaður og stjórn Reykjavíkurdeildar
Nýr formaður var kjörinn á aðalfundi Reykjavíkurdeildar AFS, sem haldinn var í gærkvöldi fyrir fullu húsi. Snædís Ylfa Ólafsdóttir var ein í framboði til formanns og var kjörin með öllum greiddum atkvæðum. Við óskum Snædísi Ylfu til hamingju með embættið.
Aðrir í stjórn voru kjörnir: Egill Þórarinsson, Ester Ösp Sigurðardóttir, Fjóla Sigurðardóttir, Hildur María Haarde, Ingimar Bjarni Sverrisson, Kristjana Konný Bjarnadóttir, Margrét Hanna Birgisdóttir og Ólafur Óli Ólafsson.
Hin nýskipaða stjórn mun skipta með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi innan tíðar.