22/2/2010 - Stjórn Reykjavíkurdeildar skiptir með sér verkum
Fyrsti fundur nýkjörinnar stjórnar Reykjavíkurdeildar var haldinn í síðustu viku. Eitt af fyrstu verkum stjórnar var að skipta með sér verkum.
Formaður Reykjavíkurdeildar er Snædís Ylfa Ólafsdóttir, varaformaður Margrét Hanna Birgisdóttir og Egill Þórarinsson er ritari/gjaldkeri. Umsjónarmaður erlendra nema er Ester Ösp Sigurðardóttir, utan um hýsinguna heldur Fjóla Sigurðardóttir, um sendingu sér Ingimar Bjarni Sverrisson, almannatengsl og skólakynningar eru í höndum Ólafs Óla Ólafssonar, Hildur María Haarde hefur umsjón með umsóknum og Kristjana Konný Bjarnadóttir hefur sjálfboðaliða á sínum snærum.
Ítarlegri upplýsingar hér.