Exclamationmarkenthusiastic_xl

1/4/2010 - MIG VANTAR FÓSTURFJÖLSKYLDU!

Um þessar mundir á hverju starfsári AFS hefst af fullum þunga vinna við að afla þeim erlendu skiptinemum, sem sótt hafa um dvöl hérlendis, fósturfjölskyldna. AFS á Íslandi leitar að fjölskyldum sem vilja hýsa erlenda skiptinema frá ágústlokum 2010 til loka júní 2011.

Að verða fósturforeldri felur fyrst og fremst í sér þær skyldur að veita stuðning, húsaskjól og fæði. Ekki er gerð krafa um að skiptinemar fái sérherbergi heldur eigið rúm til að sofa í.

Skiptinemarnir fá vasapening frá foreldrum sínum heima til þess að fara í bíó eða á böll og þess háttar. AFS sér um að koma þeim í skóla og greiðir kostnað vegna námsbóka.

Allir skiptinemar og fósturfjölskyldur fá úthlutað trúnaðarmanni sem gegnir því hlutverki að vera báðum aðilum innan handar.

Þær fjölskyldur sem hafa áhuga á að hýsa nema vinsamlegast hafi samband við Guðrúnu Eyþórsdóttur í síma 552 5450 eða með tölvupósti á gudrun@afs.org.