4/1/2010 - Síðustu forvöð - Sjálfboðaliðum boðinn styrkur til þátttöku í Chapter Exchange
Sjálfboðaliðar AFS á Íslandi hafa fengið styrk til að taka þátt í verkefni sem kallast Chapter Exchange ásamt sjálfboðaliðum í Tékklandi, Belgíu og Portúgal. Samkvæmt úthlutunarreglum er um fæði og gistingu að ræða og 70% af ferðakostnaði. Annar kostnaður fellur á sjálfboðaliðana sjálfa. Verkefnið er styrkt af Youth in Action – Evrópu unga fólksins.
En nú veltið þið eflaust fyrir ykkur hvaða verkefni þetta er og hvernig þetta mun fara fram. Stefnan er að halda fjögur málþing, eitt í hverju landi á hálfs árs fresti næstu tvö árin. Styrkurinn sem við fengum er fyrir fyrsta málþinginu sem verður haldið í Prag í Tékklandi (hin verða í sept. ‘10: Belgía, feb. ‘11: Ísland, sept. ’11: Portúgal). Í hvert skipti hittast 10 sjálfboðaliðar frá hverju landi í einu af þátttökulöndunum. Þetta verða málþing undirbúin af sjálfboðaliðum AFS fyrir sjálfboðaliða AFS!
Yfirskrift fyrsta málþingsins er: “Empowering Young Volunteers: Revealing Youth Poverty in European Countries” og verður haldið frá og með 20.-28. febrúar 2010! Fyrri hluti titilsins, “Empowering Young Volunteers”, verður yfirtitill allra málþinga, en undirtitillinn mun breytast í hvert skipti. Þessi titlar voru valdir með hliðsjón af þemu Youth in Action fyrir árin 2010 og 2011, en 2010 er European Year for Combating Poverty and Social Exclusion og árið 2011 er European Year for Volunteering. Skipulag málþinganna verður aðallega í höndum viðkomandi hýsingarlands.
Búið er að senda umsóknareyðublaðið til sjálfboðaliða á google docs. Umsóknarfrestur rennur út kl. 20:00 í kvöld, 4 janúar, þannig að nauðsynlegt er að láta hendur standa fram úr ermum fyrir þá sem ætla að sækja um.
Skilyrði fyrir þátttöku er að vera á aldrinum 13-25 ára, tala ensku, vera tilbúin/n til að aðstoða við skipulagninu málþings á Íslandi ásamt því að nota þessa reynslu til að byggja upp sjálfboðaliðastarf AFS á Íslandi enn frekar.
Til að taka af allan vafa þá eiga sjálfboðaliðar af öllu landinu sem hafa setið sjálfboðaliðanámskeið möguleika á að taka þátt, þetta verkefni er ekki bundið við eina deild. Einnig er vert að benda á að hægt er að taka þátt einu sinni, tvisvar, þrisvar eða fjórum sinnum og því hvetjum við ykkur til að sækja um oftar en einu sinni ef áhugi er fyrir hendi (fjöldi skipta mun þó fara eftir fjölda umsækjenda í hvert skipti). Að þessu sinni eru 9 sæti laus, en hópstjóri íslenska hópsins verður Steinunn S. Kristjánsdóttir.
Umsóknareyðublaðið má finna á eftirfarandi vefslóð:
http://spreadsheets.google.com/viewform?hl=en&formkey=dFp3YVhpN3h3cGpqVW9vOExfQS0xQnc6MA
| Prentvænar |
