Subpage-banner-27

Akureyri_juli

20/1/2010 - Starfsfólk AFS sækir Eyjafjarðardeild heim

Starfsfólk AFS á Íslandi leggur land undir fót næstu daga og fer til Akureyrar þar sem fundað verður með fulltrúum Eyjafjarðardeildar samtakanna og auk þess haldinn opinn fundur með sjálfboðaliðum á föstudag, 22. jan. Er þetta m.a. liður í því að styrkja tengslin við deildir samtakanna úti um land og hvetja fólk til frekari dáða.

Það verður þó ekki bara fundað og haldnir fyrirlestrar heldur verður ýmislegt gert sér til skemmtunar. T.d. munu sjálfboðaliðar, skiptinemar, fósturfjölskyldur og trúnaðarmenn skella sér á skíði í Hlíðarfjalli á laugardag, 23. jan., og að því loknu verður farið á kaffihús niðri í bæ svo fólk nái úr sér hrollinum.

print Prentvænar

Einnig í fréttum