Subpage-banner-27

Arrival

12/2/2010 - Fósturfjölskyldufundurinn verður 22. febrúar

Erlendu skiptinemarnir hafa nú verið á landinu í tæpt hálft ár. Af því tilefni verður næsti fósturfjölskyldufundur haldinn á skrifstofu AFS í Ingólfsstræti 3 mánudaginn 22. febrúar nk. kl. 20.

Á fundinum verður farið stuttlega yfir aðlögunarferlið og menningarmun en megináhersla verður lögð á að gefa fósturfjölskyldum tækifæri til að hittast og ræða málin yfir kaffibolla.

Vinsamlegast staðfestið komu ykkar með því að senda tölvupóst á snaedisy@gmail.com. Einnig er velkomið að senda fyrirspurnir og vangaveltur varðandi fundinn á sama netfang.

print Prentvænar

Einnig í fréttum