Subpage-banner-27

Bus_-_travelling

19/3/2010 - Bon voyage!

Hér á skrifstofunni í Ingólfsstræti má næstum heyra saumnál detta. A.m.k. ef mið er tekið af hlátrasköllum, ómægod-um og öllum hæ-unum rétt áðan þegar langflestir erlendu skiptinemarnir okkar hittust hér í byrjun Menningarhelgar og hituðu sig upp við pítsuát og gosþamb. Flottur og fjölbreytilegur hópur þar á ferð.

Síðast þegar fréttist voru hópurinn og skeleggir fararstjórarnir að bíða eftir rútunni niðri í Lækjargötu fyrir neðan MR - við hliðina á einum þessara strætóskýla sem eru út um allan bæ. Einhverjum varð að orði að krakkarnir mættu alls ekki taka eina af þessum gulu langferðabifreiðum sem renna þar við reglulega, þá væri næsta víst að Menningarhelgi þeirra færi ekki fram á tilætluðum stað!

Ef allt hefur farið samkvæmt áætlun, sem engin ástæða er til að efast um, ætti krakkaskarinn að vera lagður af stað til Bessastaða að heilsa upp á Ólaf Ragnar og Dorrit. Síðan liggur leiðin á Lýsuhól á Snæfellsnesi þar sem hópurinn heldur til yfir helgina.

Bon voyage!

print Prentvænar

Einnig í fréttum