28/3/2010 - Frá heimsókn til Bessastaða
Eins og við greindum frá fyrir nokkru heimsóttu erlendu skiptinemarnir okkar forseta Íslands, herra Ólaf Ragnar Grímsson, á Bessastaði föstudaginn 19. mars sl.
Er skemmst frá að segja að forsetinn tók afar vel á móti hinum glæsilega hópi og kynnti krökkunum m.a. sögu Bessastaða. Eins og góðra gesta er siður afhentu krakkarnir forsetanum blómvönd. Í ljósi þess að annar skiptinemanna sem afhenti honum vöndinn er norskur vakti forsetinn athygli þeirra á því að Íslendingar hefðu upphaflega komið frá Noregi.
Krökkunum fannst mikið til heimsóknarinnar koma enda mörg þeirra frá löndum þar sem þjóðhöfðinginn er ekki innan seilingar nema fyrir örfáa útvalda.
| Prentvænar |
