Subpage-banner-27

Landssamband_æskulýðsfélaga

31/3/2010 - Leitað eftir hópstjórum á ráðstefnu í vor

Landssamband æskulýðsfélaga (LÆF) sendi okkur eftirfarandi:

Norræna ráðherranefndin og mennammálaráðuneyti standa fyrir norrænni ráðstefnu dagana 20. og 21. maí nk. undir heitinu Æskan – rödd framtíðar. Á ráðstefnunni verður fjallað um niðurstöðu samnorrænnar könnunar á högum ungs fólks á aldrinum 16-19 ára. Meginhluti ráðstefnunnar fer fram í vinnustofum sem byggjast á niðurstöðum rannsóknarinnar. Vinnustofunar munu fjalla um: tungumál og menningu, menntun og tölvunotkun,  jafnrétti, lífsstíl og þátttöku í íþrótta- og æskulýðsstarfi.

Leitað er eftir hópstjórum til að stýra vinnustofunum. Viðkomandi þurfa að hafa reynslu af stjórnun hópavinnu, hafa mjög góða enskukunnáttu og vera á aldrinum 20-35 ára. Áhugasamir sendi umsókn með ferilskrá á netfangið youth@youth.is. Umsóknarfrestur er til 15. apríl.

Allar nánari upplýsingar um ráðstefnuna má finna á www.nyr2010.is.

ATHS. frá menningar- og menntamálaráðuneytinu 29. apríl:
Vegna annarra norrænna viðburða sem haldnir verða 20. 21. maí næstkomandi hefur verið ákveðið að fresta ráðstefnunni Æskan rödd framtíðar þangað til 28. – 30. október 2010.

Dagskrá verður með svipuðu sniði og áður var auglýst. Heimasíða ráðstefnunnar www.nyr2010.is verður áfram opin og uppfærð miðað við þessar breytingar.

Nýtt boð á ráðstefnuna verður sent út í ágúst.

print Prentvænar

Einnig í fréttum