13/4/2010 - Nýtt fréttabréf AFS - ófullkominn útsendilisti
Sl. föstudag urðu viss tímamót í sögu AFS á Íslandi þegar fyrsta rafræna fréttabréf samtakanna var sent út. Útsendilistinn innihélt á milli fimm og sex hundruð netföng en nú fjórum sólarhringum síðar hafa aðeins um tíu prósent viðtakenda opnað póstinn með fréttabréfinu. Það segir okkur aðeins eitt – útsendilistinn okkar er afar ófullkominn.
Til þess að sem flestir AFS-arar og velunnarar samtakanna geti notið fréttabréfsins í framtíðinni vinnum við að því að uppfæra listann. Til þess að gera þá vinnu enn markvissari förum við fram á við ykkur, sem hafið hvorki séð tangur né tetur af fréttabréfinu, að þið sendið póst til arni@afs.org með nafni ykkar og netfangi. Vinsamlegast setjið “Uppfæra útsendilista” sem “subject”.
| Prentvænar |
