23/10/2009 - Ævintýrin leynast undir niðri
Dreymir þig um að upplifa Ástralíu og kynnast lífinu í þessu afslappaða og skemmtilega landi? Hér er þinn möguleiki á að skipta út dimmum vetrardögum á Íslandi fyrir sól í suðri. Nú býður AFS á Íslandi upp á sjálfboðaliðadvöl í Ástralíu fyrir 18 til 29 ára, með brottför í febrúar eða apríl 2010.
Möguleiki er á þriggja eða fimm mánaða dvöl. Þátttökugjöld eru 300.000 kr fyrir þriggja mánað dvöl og 360.000 kr fyrir fimm mánuði, en að auki greiða þátttakendur fyrir flug til Ástralíu frá Íslandi.
Umsóknarfrestur er til 30. október og hvetjum við áhugasama til að sækja um strax í dag. Fyrir nánari upplýsingar ekki hika við að hafa samband við Lindu (linda@afs.org) eða í síma 552-5450.
| Prentvænar |
