2/12/2009 - Við leitum að heimili fyrir sjálfboðaliðann okkar, hann Andrea
Í byrjun janúar 2010 fáum við liðsauka hér á skrifstofuna en þá mun 24 ára gamall ítalskur sjálfboðaliði að nafni Andrea koma til Íslands til að starfa með samtökunum.
Þar sem AFS samtökin byggja á því að tengja menningarheima og deila lífsháttum til að auka hluttekningu og skilning leggjum við mikla áherslu á svokallað homestay eða að AFSarar dvelji hjá fjölskyldum. Með því móti ná þeir að aðlagast og tengjast landi og þjóð á mun farsælli hátt en ella.
Við leitum því að heimili fyrir Andrea frá janúar 2010.
Endilega hafið samband við skrifstofuna ef þið hafið áhuga á að hýsa Andrea eða vitið um góða fjölskyldu sem er með auka herbergi, s: 552-5450.
| Prentvænar |
