Greiðslur
Umsækjendur greiða staðfestingargjald að upphæð kr. 90.000 kr. fyrir árs og hálfsársdvöl, og 45.000 kr. fyrir 3 mánaða dvöl og sumardvöl, þegar starfólk AFS hefur samþykkt framhaldsumsókn umsækjanda. Þetta gjald er óafturkræft. Ekki er unnið í umsókn fyrr en staðfestingargjald hefur verið greitt. Gert er ráð fyrir að þátttökugjöld séu greidd að fullu til AFS í síðasta lagi mánuði fyrir brottför.
Námsstyrkir fyrir umsækjendur
Umsækjendur geta sótt um námsstyrki til til AFS til lækkunar á þátttökugjöldum. Styrkirnir eru ætlaðir umsækjendum sem koma frá efnaminni heimilum eða búa við sérstakar aðstæður. Umsókn um styrk þarf að berast með framhaldsumsókn á þar til gerðu eyðublaði ásamt nýjustu skattskýrslu foreldra.
Styrkirnir eru veittir fjórum sinnum á ári: í október og desember vegna vetrarbrottfarar og í febrúar og apríl vegna sumarbrottfarar. Fjöldi styrkja og upphæðir eru breytileg eftir umsóknum.
Styrkir eru ávallt niðurgreiðsla á þátttökugjöldum og eru þar af leiðandi ekki greiddir út í peningum.
Nánari upplýsingar um styrki og greiðslufyrirkomulag veitir framkvæmdastjóri AFS á Íslandi.
