AFS eru alþjóðleg sjálfboðaliðasamtök, sem þýðir að samtökin byggja starf sitt að stórum hluta á framlagi sjálfboðaliða. Með AFS starfa tugir þúsunda sjálfboðaliða um heim allan. Starfræktar eru deildir í hverju landi þar sem sjálfboðaliðar, í samvinnu við starfsfólk, skipuleggja og bera ábyrgð á starfsemi AFS á svæðinu.
Með AFS á Íslandi starfa um 300 sjálfboðaliðar um land allt. Þrjár AFS- deildir eru starfandi hér á landi, í Reykjavík, á Eyjafjarðarsvæðinu og á Vesturlandi.
Meðal verkefna sjálfboðaliða er að:- Standa fyrir kynningum á samtökunum, m.a. í skólum og á fleiri stöðum.
- Taka viðtöl við þá sem sækja um dvöl erlendis.
- Koma að undirbúningsnámskeiðum fyrir nema á leið út.
- Finna fjölskyldur fyrir erlenda nema sem hingað koma.
- Undirbúa tilvonandi fósturfjölskyldur.
- Halda námskeið fyrir erlenda nema.
- Styðja erlenda nema, sem trúnaðarmenn eða skólatenglar.
- Skipuleggja félagsstarf.
Einnig vinna sjálfboðaliðar í ýmsum nefndum á vegum félagsins. Sjálfboðaliðar þurfa að fá viðeigandi þjálfun til að geta sinnt störfum sínum og árlega heldur AFS á Íslandi nokkur þjálfunarnámskeið fyrir þá. Einnig sér félagið til þess að sjálfboðaliðar eigi kost á að taka þátt í námskeiðum, bæði hérlendis og erlendis, sem tengjast æskulýðsmálum og alþjóðlegri menntun.
Viltu taka þátt?
Alltaf er þörf á áhugasömum sjálfboðaliðum til starfa í stór og smá verkefni. Sendu okkur póst á netfangið info-isl@afs.org ef þú hefur áhuga á að vera með.
