Hér getur þú sótt um skiptinemadvöl hjá AFS
Þegar þú ert komin(n) á síðuna skaltu ýta á Participant Application og í næsta glugga ýtirðu á Do not have account? Click here to Sign up. Þegar þú hefur skráð þig færðu notendanafn og leyniorð sent í tölvupósti.
Næsta skref er að ýta á Log in to Participant Application og þar skráir þú notandanafn og lykilorð. Að því loknu byrjar frumumsóknin.
Þegar frumumsóknin hefur verið vandlega útfyllt ýtir þú á takkann Senda skjal til AFS. Þegar við höfum farið yfir umsóknina og samþykkt færðu aðgang að framhaldsumsókninni. Einnig verður haft samband við þig og þú boðaður í viðtal á skrifstofunni.
Þegar búið er að afla nauðsynlegra gagna fyrir framhaldsumsóknina og þau skönnuð inn er hægt að ýta á takkann Senda skjal til AFS. Þá munum við annaðhvort samþykkja þig eða hafna og munum við láta þig vita innan viku.
Ef þig vantar hjálp við að fylla út umsóknina getur þú sent okkur tölvupóst á linda@afs.org eða hringt í skrifstofuna, síminn er 552 5450.
