Umsóknarferlið hefst með því að skila inn frumumsókn. Frumumsókn er fyllt út rafrænt á Netinu og þarf að fylgja með mynd af umsækjanda, tveggja blaðsíðna langt bréf á ensku þar sem umsækjandinn segir frá sjálfum sér og 5.000 króna umsóknargjald.
Þegar frumumsókn hefur verið skilað fær umsækjandinn senda framhaldsumsókn og er boðaður í viðtal. Greiða þarf 90.000 króna staðfestingargjald þegar AFS á Íslandi hefur samþykkt framhaldsumsóknina.
Framhaldsumsóknin er staðlað form og skal fylla út á ensku. Fyrir umsóknina þarf m.a. að fara í læknisskoðun, skrifa bréf á ensku til verðandi fósturfjölskyldu, fá ummæli kennara og skóla, ummæli foreldra, búa til myndaalbúm og fylla út landavalsblað. Umsækjandinn velur fimm lönd sem hann getur hugsað sér að dvelja í sem skiptinemi. Þá fær umsækjandinn og fjölskylda hans heimsókn frá sjálfboðaliðum AFS.
Starfsfólk AFS á Íslandi fer yfir framhaldsumsóknina þegar henni er skilað til skrifstofunnar. Verði umsóknin samþykkt af AFS á Íslandi er hún send til eins af þeim fimm löndum sem umsækjandinn hefur skráð á landavalsblaðið.
Að því loknu kemur biðtími eftir svari frá umsóknarlandinu. Annaðhvort er umsóknin samþykkt eða ekki. Verði hún ekki samþykkt er hægt að senda umsóknina til annars lands sem umsækjandinn hefur valið.
Þegar samþykki er komið frá umsóknarlandinu hefst vinna í því landi að finna hentuga fjölskyldu fyrir verðandi skiptinema. Þegar fjölskyldan er fundin fær verðandi skiptinemi sendar upplýsingar um þann stað sem hann fer til, um fjölskylduna og skólann.
Stuttu áður en skiptinemadvölin hefst er haldið undirbúningsnámskeið fyrir verðandi skiptinema og er skyldumæting á slíkt námskeið.
Greiða verður þátttökugjöld fyrir dvölina í síðasta lagi mánuði fyrir áætlaðan brottfarardag.
