Það að verða fósturforeldri skiptinema felur fyrst og fremst í sér þær skyldur að veita stuðning, húsaskjól og fæði. Að hýsa skiptinema getur haft miklar breytingar í för með sér fyrir alla aðila, skiptinemann sjálfan og fjölskylduna sem hýsir hann. Allir aðilar læra nýja siði og tungumál, en skiptinemar á okkar vegum leggja sig iðulega fram við að læra tungumálið þótt árangurinn sé misjafn.
Margir skiptinemar eru enn í sambandi við fósturfjölskyldu sína og dæmi eru um að jafnvel barnabörn haldi sambandi við afkomendur fósturforeldranna eftir að afar þeirra eða ömmur fóru út á vegum AFS.
Árlega koma á milli 40 og 50 erlendir skiptinemar til dvalar hérlendis.
