Subpage-banner-27

Erlendir nemar á Íslandi 2009-2010

Argentína – Yulian Marcos Bettellini Pochettino
Yulian fæddist 12. janúar 1993 og býr í Santa Fe ásamt móður sinni og bróður sem er sjö árum eldri. Faðir hans lést þegar hann var tveggja ára. Yulian stundar keppnisróður og æfir þrisvar í viku. Hann hefur gaman af íþróttum og æfði áður líka sund. Það sem er honum mikilvægast er fjölskyldan, hundarnir hans tveir, páfagaukurinn, skólinn og íþróttirnar. Hann er vanur að hjálpa til heima hjá sér þar sem mamma hans vinnur mikið. Hann segist eiga auðvelt með að eignast vini og er opinn og glaðlyndur. Bekkurinn hans valdi hann sem fulltrúa sinn þar sem hann hefur mikinn áhuga á samvinnu. Yulian hefur áhuga á að læra læknisfræði þar sem hann hefur mikinn áhuga á líffræði og því að geta sinnt starfi þar sem hann getur hjálpað öðrum.

Bandaríkin – Colin Scott McKinstry
Colin fæddist 28. september 1990 og býr í Oxford, Ohio, ásamt foreldrum sínum og mörgum hundum og köttum. Colin hefur áhuga á gönguferðum og útivist þar sem hann er mikill náttúruunnandi. Hann er mjög hrifinn af dýrum. Hann hefur gaman af tónlist, leiklist og hefur áhuga á menningu og sögu. Colin hefur mikinn áhuga á sögu Evrópu og þá sérstaklega á sögu Norðurlandanna. Hann hefur áhuga á að læra sagnfræði og mannfræði í framtíðinni.

Bandaríkin – Sarah Jones
Sarah fæddist 26. júní 1993 og býr í Rockville ásamt foreldrum sínum. Sarah hefur gaman af tónlist og spilar á píanó, syngur í kór og semur stundum sína eigin tónlist. Hún hefur gaman af því að fara á tónleika og þá sérstaklega sinfóníutónleika. Hún hefur gaman af lestri og finnst mjög skemmtilegt að baka. Hún tekur það fram að hún hefur engan sérstakan áhuga á íþróttum. Hún er virk í æskulýðsstarfi kirkjunnar og er þekkt fyrir að baka bestu bökurnar. Hún er kristin og finnst gott að geta farið í kirkju. Hana langar til að verða kennari í framtíðinni en er ekki viss hvort hún vill verða sögu- eða tónlistarkennari. Hún er með ofnæmi fyrir köttum og nagdýrum (hömstrum og naggrísum sérstaklega).

Belgía (flæmskumælandi) – Lies Leni Erna Van Espen
Lies fæddist 22. apríl 1991 og býr í Brasschaat ásamt foreldrum sínum og tveimur bræðrum. Hún hefur áhuga á söng, hestum, lestri og hefur gaman af því að versla. Hún hefur verið trúnaðarmaður nema í skólanum sínum. Hún hefur áhuga á að læra hagfræði og efir það hefur hún áhuga á að reyna fyrir sér sem söngvari í söngleikjum. Draumurinn hennar væri að leika í söngleik á Brodway eða West End. Hún er í söngtímum en ætlar að ná sér í háskólagráðu til vara ef hún skyldi ekki geta orðið söngkona.

Belgía (flæmskumælandi) – Lennart Opsteyn
Lennart fæddist 19.apríl 1991 og býr í Zutendaal ásamt foreldrum sínum og systur sem er þremur árum eldri en hann. Hann hefur mikinn áhuga á járnsmíði og hefur gaman af því að búa til hluti úr járni. Hann hefur áhuga á tónlist og sögum, sérstaklega goðsögum og hetjusögum og hlakkar því til að heyra allar sögurnar sem Íslendingar kunna. Foreldrar lýsa honum sem félagslyndum og sjálfstæðum.

Belgía (frönskumælandi) – Melanie Wilmet
Melanie fæddist 22. september 1991 og býr í Nivellees ásamt foreldrum sínum, bróður, hundi og þremur köttum. Hún hefur áhuga á tónlist, dansi, kvikmyndum, ljósmyndun og að vera með vinum sínum. Vinir hennar segja að hún sé hjálpsöm, áreiðanleg og heiðarleg. Melanie hefur verið í skátunum í 11 ár. Hún er ekki viss hvað hún ætlar að gera í framtíðinni en það sem kemur til greina er að verða sálfræðingur, arkitekt eða kennari.

Ekvador – Anabel Paola Navarrete
Anabel fæddist 7. ágúst 1991 og býr í Guayaquil ásamt móður sinni, tveimur bræðrum, systur og tveimur hundum. Hún hefur áhuga á tungumálum, menningu og skák. Anabel keppir í skák og er í háskólakór Guayaquil. Hún hefur lært að gera skartgripi sem hún hefur getað selt. Í framtíðinni hefur hún áhuga á að læra eitthvað tengt ferðamannaþjónustu.

Finnland – Elina Marianne Lukkarinen
Elina fæddist 20. mars 1992 og býr í Kulho ásamt foreldrum sínum, tveimur eldri systrum og hundi. Hún spilar á klarinett, æfir fimleika og syngur í kór. Henni finnst gaman að fara á hestbak, að elda og synda. Einnig hefur hún áhuga á umhverfismálum og tungumálum. Hún á það til að vera feimin í fyrstu en um leið og hún kynnist fólki lagast það. Vinir hennar segja að hún hafi góðan húmor. Henni finnst ekkert gaman að hanga á Internetinu og vill miklu frekar tala við fólk í eigin persónu.

Frakkland – Charlie Aoustet
Charlie fæddist 2. febrúar 1994 og býr í Cruas ásamt móður sinni, stjúpföður, bróður, sem er tveimur árum eldri (er nú með AFS í Perú), systur, sem er níu ára, og AFS-bróður sínum, sem er frá Chile. Hann á labrador-hund og kött. Cruas er lítið þorp og þar búa um 2.600 manns. Faðir hans býr í sama þorpi og er sambandið þeirra á milli mjög gott. Hann hefur áhuga á íþróttum (rugby aðallega og fótbolta), að fara í bíó, hlusta á tónlist og lesa. Hann segist vera rólegur og eiga auðvelt með að aðlagast og leiðist aldrei.

Frakkland – Mathieu Marchand
Mathieu fæddist 21. ágúst 1992 og býr í Lons Le Saunier ásamt foreldrum sínum og systrum. Hann æfir júdó tvisvar í viku og er með svarta beltið. Hann hefur gaman af því að lesa, horfa á sjónvarp og vera í tölvunni. Hann segist ekki getað eldað en sé liðtækur á örbylgjuofninn. Hann er þó frægur fyrir að geta búið til mjög góða súkkulaðimousse. Vinir hans segja hann bjartsýnan, opinn, glaðlyndan og eiga auðvelt með að aðlagast nýjum aðstæðum. Hann hefur lag á að láta fólki í kringum sig líða vel. Mathieu er ekki búinn að ákveða sig hvað hann ætlar að læra í framtíðinni en jafnvel eitthvað tengt ferðamálum, félagsmálum eða að verða kennari.

Grænland/Danmörk – Kathrine Rosenoern Loevstroem
Kathrine fæddist 30. október 1993 og býr í Nuuk ásamt foreldrum sínum, bróður, sem er einu ári eldri, og hundi. Hún hefur áhuga á að teikna, hlusta á tónlist (spilar aðeins á píanó), íþróttum (handbolta og fótbolta), fara í gönguferðir með hundinn, lestri, ferðalögum, fiskveiði og veiði. Foreldrar hennar lýsa henni sem heiðarlegri og vinalegri og vinir hennar segja að hún geti alltaf fengið þau til að hlæja. Hún segist elska fólk, dýr og náttúruna. Hana langar til að verða lögfræðingur í framtíðinni.

Hong Kong – Chor Kiu Chow
Chor Kiu fæddist 18. desember 1992 og býr í Hong Kong ásamt föður sínum, bróðir hennar er í námi í Kína og móðir hennar býr í Kanada. Hún hefur gaman af því að elda og lesa. Einnig hefur hún verið í leiklistarklúbbi þar sem handritsgerð er kennd. Henni finnst gaman að fara út með vinum sínum og segist vera mjög málglöð, finnst gaman að deila hlutum með fólki. Henni er mikið í mun að gleðja aðra og er auðveld í umgengni.

Hong Kong – Heidi Lo
Heidi fæddist 16. maí 1992 og býr í Hong Kong ásamt foreldrum sínum. Henni finnst gaman að elda, les mikið, hefur áhuga á að læra fleiri tungumál og hefur áhuga á menningu. Hún er í körfuboltaliði skólans og í ljósmyndafélaginu. Hún á marga vini og segist vera ófeimin og félagslynd og meðal annars var hún kosin bekkjarforseti . Hún gæti hugsað sér að verða læknir í framtíðinni.

Hong Kong – Hiu Ching Wong
Hiu Ching fæddist 28. mars 1992 og býr í Hong Kong ásamt foreldrum sínum og tveimur yngri systrum. Hún er mikið fyrir íþróttir og æfir blak, hún er fyrirliði liðsins. Henni finnst líka gaman að elda og teikna. Hún á mikið af vinum og á auðvelt með að eignast vini. Hún er glaðlynd, opin og mjög virk. Foreldrar hennar segja að hún sé mjög jákvæð og passar yngri systur sínar með glöðu geði. Hana langar til að búa í litlum bæ þar sem hún er nálægt náttúrunni. Hana langar til að verða hönnuður í framtíðinni.

Hong Kong – Ho Man Lau
Ho Man fæddist 8. Janúar 1992 og býr í Hong Kong ásamt foreldrum, bróður sem er tveimur árum yngri og hundi. Hann hefur áhuga á fótbolta, hokkí, hjólreiðum og fara á skauta. Honum finnst gaman að synda og vera úti. Hann segist vera glaðvær og afslappaður og koma frá fjölskyldu þar sem allt er rætt. Hann er sjálfboðaliði í kirkjunni (kristinn) sinni þar sem hann hefur ánægju af því að hjálpa fólki. Hann langar til að verða innanhússarkitekt og hefur mikinn áhuga á hönnun.

Ítalía – Alice Nocera
Alice fæddist 3. febrúar 1992 og býr í Trapani ásamt foreldrum sínum og eldri bróður. Hún hefur gaman af því að hitta vini sína, fara í sund, tefla og elda. Hún æfir sund og hefur unnið margar verðlaunapeninga í gegnum árin. Hún hefur einnig unnið til verðlauna fyrir skák. Hún er með próf sem strand/sundlaugarvörður (lifeguard ). Alice elskar dýr og á sjálf páfagauka. Í framtíðinni langar Alice til að verða læknir eða starfa við eitthvað annað tengt mannúðarmálum.

Ítalía – Andrea Zambon
Andrea fæddist 8. janúar 1992 og býr í Conselve ásamt móður sinni og sambýlismanni hennar. Hann stundar bardaíþróttir (karate, ju-jitsu, kick-boxing og kyushu) og er með blátt belti. Hann kennir stundum börnum líka karate. Hann hefur gaman af því að lesa og fara á skíði. Hann hefur mjög gaman af hundum. Hann segist því miður ekki eiga nein systkini en aftur á móti eigi hann fullt af vinum. Hann segist vera hláturmildur og félagslyndur. Hann gæti hugsað sér að verða sálfræðingur eða skógarvörður í framtíðinni .

Ítalía – Chiara Cavallero
Chiara fæddist 10.desember 1992 og býr í Quattordio Alessandria ásamt foreldrum sínum og bróður sem er tveimur árum eldri en hún . Fjölskyldan á einn hund og fjóra ketti. Hún hefur gaman af dansi, leiklist, tennis, skíðum og spilaði áður á píanó þó hún sé hætt því núna. Einu sinni í viku passar hún ásamt öðrum unglingum leikskólabörn. Þau lita, syngja og klippa út saman frá tvö til fimm alla laugardaga. Hún hefur áhuga á að fara í háskóla og læra tungumál í framtíðinni.

Ítalía – Giorgia Carnovale
Giorgia fæddist 25. ágúst 1992 og býr í Róm ásamt foreldrum sínum og bróður sem er fimm ára. Hún hefur áhuga á stjórnmálum og málefnum dagsins, lestri, skrifum og tónlist. Hún hefur gaman af íþróttum og þá sérstaklega blaki, skíðum, að fara á hestbak og siglingum. Hún er þó ekki mikil íþróttakona eða keppnismanneskja heldur stundar íþróttir af því henni finnst þær skemmtilegar. Hún segist vera draumóramanneskja, mjög félagslynd og hafa mikla þörf fyrir að tala. Henni finnst gaman að tala um heimsmálin og stjórnmál og hefur miklar skoðanir. Hún er ekki búin að ákveða hvað hún ætlar að læra en stefnir á læknisfræði, alþjóðalög eða blaðamennsku.

Ítalía – Giorgia Marcantoni
Giorgia fæddist 30. maí 1992 og býr í Cavrasto Bleggio Superiore Trento ásamt foreldrum sínum, bróður og hundinum Stellu. Cavastro er lítið fjallaþorp þar sem búa 250 manns og allir þekkja alla. Hún er mjög ánægð yfir því að að búa ekki í borg þar sem er mengun og hávaði. Hún hefur gaman af því að fara á skíði og í sund og svo stundar hún Kung fu. Hún les mikið, finnst gaman að fara út með vinum sínum og vera með hundinum. Hún hefur gaman af því að prófa framandi mat og finnst allt sem er öðruvísi áhugavert. Hana langar til að verða dýralæknir í framtíðinni þar sem hún hefur mikinn áhuga á dýru og öllu tengdum þeim.

Ítalía – Giulia Deiana
Giulia fæddist 8. janúar 1993 og býr í Selargius ásamt foreldrum sinum, systur sem er þremur árum yngir en hún og hundi. Hún spilar á píanó, hefur gaman af flestum íþróttum (spilar tennis, æfir hástökk með skólaliðinu og syndir), lestri og tölvuleikjum. Vinir hennar og fjölskylda segja að hún sé forvitin persónuleiki sem hefur gaman af að rýna í hlutina. Hana langar til að læra læknisfræði í framtíðinni.

Ítalía – Ivano Giuseppe Sorce
Ivano fæddist 26. apríl 1993 og býr Scalenghe ásamt foreldrum sínum og systur sem er þremur árum yngri en hann. Hann er ekki mikið í íþróttum þar sem hann er með slæmt hné, en hann hefur áhuga á lestri, heimildarmyndum, vera með vinum sínum, ferðalögum og fara á söfn sem tengjast sögu og vísidum. Hann segist vera feiminn en eiga auðvelt með að aðlagast og eignast vini.

Ítalía – Lorenzo Serafino
Lorenzo fæddist 3. október 1991 og býr í Striano ásamt foreldrum sínum og tveimur systkinum. Hann hefur áhuga á fótbolta og íþróttum almennt ásamt því að teikna, hlusta á tónlist og fara út með vinum. Hann hefur mikinn áhuga á að kynnast annarri menningu og langar til að leggja sig fram við að læra tungumálið. Vinir og fjölskyldan hans segja að hann sé vinalegur og hreinskilinn. Hann langar til að verða arkitekt í framtíðinni.

Ítalía – Maurizio Schiavi
Maurizio fæddist 7. maí 1992 og býr í Melzo / Mílanó ásamt föður sínum, stjúpmóður og ketti. Maurizio á tvo bræður og búa þeir með móður hans. Hann hefur áhuga á tónlist, bardagaíþróttum, japönskum teiknimyndasögum og að spjalla við vini á netinu. Hann spilar á trompet (er samt ekki í tímum) og æfir karate tvisvar í viku. Hann segist vera örlítið feiminn þegar hann hittir fólk fyrst en það er fljótt að fara af honum. Hann langar til að læra verkfræði í framtíðinni. Maurizio þarf að komast til tannréttingarlæknis á meðan hann er á Íslandi í eftirlit.

Ítalía – Viola Colombo
Viola fæddist 5. september 1992 og býr í Inverigo Como ásamt foreldrum sínum og hundi. Hún hefur áhuga á lestri, ferðalögum, hlusta á tónlist, læra tungumál, spila rugby og blak og fara á hestbak. Hún segist eiga auðvelt með að aðlagast, vera glaðlynd og vinaleg. Henni finnst gaman að fara í leikhús og spilaði á fiðlu þangað til hún var 13 ára. Hún gæti hugsað sér að læra eitthvað tengt leiklist eða listasögu í framtíðinni. Einnig gæti hún hugsað sér að verða lögfræðingur.

Japan – Ricky Jones
Ricky fæddist 25. apríl 1991 og býr í Akita-shi ásamt foreldrum sínum, systur og bróður. Faðir Ricky er frá Bandaríkjunum og móðir hans er japönsk. Ricky spilar á trommur, syndir og spilar körfubolta. Vinir hans segja að hann sé glaðlyndur og fyndinn og eigi auðvelt með að eignast vini. Hann segist hafa valið Ísland sérstaklega þar sem það sé lítið land og vegna þess að hann hafi mikinn áhuga á víkingum og sögu þeirra. Honum finnst gaman að elda og lofar að elda japanskan mat fyrir tilvonandi fósturfjölskyldu sína. Ricky er með áreynslutengt ofnæmi þannig að hann gengur með svokallaðan EPI-penna á sér til að sprauta sig ef hann finnur að hann er að fá ofnæmiskast. Þetta er samt ekkert sem háir honum í daglegu lífi og kemur sjaldan fyrir. Hann fékk síðast kast 2007.

Japan – Takehiro Yamamoto
Takehiro fæddist 29. maí 1991 og býr í Midori-ku, Nagoya-shi ásamt foreldurm sínum og bróður sem er þremur árum eldir en hann. Hans aðaláhugamál er sund og æfir hann með skólaliðinu. Hann hefur gaman af íþróttum, tónlist, ferðalögum og fara í bíó. Einnig finnst honum mjög gaman að hafnarbolta. Hann hefur mikinn áhuga á náttúru Íslands. Hann hefur mikinn áhuga á að læra íslensku og er þegar byrjaður að læra hana í Japan.

Japan – Nodoka Otsuki
Nodoka fæddist 22. júní 1993 og býr í Nagaokakyo nálægt Kyoto ásamt foreldrum sínum, systur, bróður og hundi. Hún hefur mikinn áhuga á dansi og æfir nútímadans, ballett og hefðbunda japanska dansa tvisvar í viku. Hún hefur gaman af lestri og að hlusta á tónlist. Nodoka hefur mjög gaman af hundinum sínu sem er svört labrador tík og hún er sú sem fer alltaf út að ganga með hana. Hún er vön að hjálpa til við húsverkin. Hún á marga vini og þeir segja hana vinalega og ljúfa. Í framtíðinni langar hana til að verða ljósmóðir.

Kanada (frönskumælandi) – Samuel Laporte
Samuel fæddist 16. mars 1992 og býr í Mont-Laurier ásamt foreldrum sínum og systur. Hann hefur áhuga á útiveru, gönguferðum, hjólreiðum, tónlist, leiklist, snjóbrettum/skíði, stundar box 2svar í viku, fer oft í sund með vinum sínum, hefur gaman af þvi að taka myndir og spilar á saxafón, pianó og gítar. Vinir hans lýsa honum sem glöðum og vinalegum strák sem hefur gaman af því að kynnast nýju fólki og eigi auðvelt með að aðlagast. Samuel situr í nemendaráði í skólanum sínum og langar til að verða sögu -eða frönskukennari í framtíðinni. Samuel er með kattarofnæmi .

Noregur – Erin Kristin Kjaer
Erin fæddist 3. mars 1992 og býr í Laksvatn ásamt foreldrum sínum, tveimur systrum og hundi. Hún hefur áhuga á fótbolta (heldur með Arsenal), tónlist, ljósmyndun og að mála. Bítlarnir eru í miklu uppáhaldi hjá henni og hún segist spila á gítar. Hún tekur fram að hún sé ekki góð en hafi gaman af því að spila. Hún er mjög sjálfstæð og opin, og hún hefur mikinn áhuga að berjast fyrir réttindum ungs fólks. Hún er í samtökum sem berjast gegn unglingadrykkju. Hana langar til að verða meinafræðingur eða blaðamaður í framtíðinni.

Spánn – Manuela Eusse Giraldo
Manuela fæddist 13. júní 1993 í Kólumbíu. Hún hefur áhuga íþróttum og þá sérstaklega á fótbolta. Hún segist vera mjög sjálfstæð, ábyrgðarfull og með góðan húmor. Í framtíðinni hefur hún áhuga á að starfa sem sjálfræðingur eða sem lögregluþjónn. Fjölskylda hennar hýsti íslenskan skiptinema á síðasta ári og mun hún búa hjá fjölskyldu íslensku systur sinnar þegar hún kemur til landsins. Manuela mun fara í FB.

Sviss – Linda Blätter
Linda fæddist 20. september 1993 og býr í Hergeswill ásamt foreldrum, systur (sem fór með AFS til Noregs) og kettinum Fuchs. Hún er skátaforingi, spilar á sílófón og hefur gaman af því að vera með vinum sínum. Linda segist vera fljót að aðlagast nýjum aðstæðum og er viss um að aðlagst mjög fljótt fjölskyldu sinni á Íslandi. Foreldara hennar segja hana auðvelda í umgengni og að hún hjálpi til við húsverk og eldamennsku með glöðu geði.

Sviss – Matteo Wullschleger
Matteo fæddist 27. maí 1993 og er frá Zofingen þar sem hann býr ásamt foreldrum sínum og og systur. Hann hefur gaman af því að lesa og skrifa sögur, hlusta á tónlist, ljósmyndun, leiklist, elda, baka, og hitta vini sína. Hann spilar á þverflautu. Hann segist vera glaðlyndur og stundum dálítið kaótískur . Hann er félagslyndur og finnst gaman að spjalla og hlær mikið. Hann hefur áhuga á öllu tengdu menningu og sérstakan áhuga hefur hann á Íslandi. Hann hefur mikinn áhuga á að læra íslensku. Hann er þegar byrjaður að læra íslensku í Sviss og skrifar meira að segja nokkrar setningar á íslensku í bréfi sínu til tilvonandi fósturfjölskyldu.Hann á mikið af bókum um Ísland og er búinn að hengja íslenska fánan upp í herberginu sínu. Honum finnst gaman að vera úti í náttúrunni og tekur þá oft mikið af ljósmyndum. Hann gæti hugsað sér að verða rithöfundur, leikari eða barnaskólakennari.

Tyrkland – Burak Demirci
Burak fæddist 5. júlí 1991 og býr í Adana ásamt foreldrum sínum og systur. Hann spilar körfubolta og finnst gaman að hlusta á tónlist. Hann hefur mikinn áhuga á sögu og hefur mikinn áhuga á seinni heimstyrjöldinni og Napoleon. Hann hefur líka gaman af heimspeki. Hann langar til að ferðast um heiminn og hefur áhuga á að læra eitthvað tengd alþjóðasamskiptum

Tæland – Narat Suchartsunthorn
Narat fæddist 17. janúar 1993 og býr í Thaweewattana hverfinu í Bangkok ásamt tvíburabróður sínum og systur. Hann hefur áhuga á vefsíðugerð, skák og lestri. Fjölskyldan hefur síðan gaman af þvi að fara saman í golf, körfubolta, fótbolta eða badmington. Narat segist vera feiminn en um leið og hann kynnist fólki fer það af honum. Foreldrar hans segja hann glaðlyndan og ábyrgan strák sem hjálpar vinum sínum með heimaverkefnin.

Tæland – Suparat Mahitthayaporn
Suparat fæddist 21. ágúst 1992 og býr í Klongluang ásamt foreldrum sínum og systrum. Hún hefur gaman af lestri, hlusta á tónlist, syngja og teikna. Hún spilar badmington og finnst gaman að fara í sund. Hún segist vera glaðvær, með góðan húmor, ábyrgðarfull og auðveld í umgengni.Hún hefur heyrt, tekur hún fram, að Ísland sé besta land í heimi! Þess vegna valdi hún að koma hingað. Hún hefur áhuga á íslenskri menningu og mikinn áhuga á að læra tungumálið. Í framtíðinni langar hana til að verða innanhússhönnuður.

Venesúela – Carlos Alfredo Maneiro Merida
Carlos fæddist 17. júlí 1992 og býr í Pampatar Isla de Margarita ásamt foreldrum sínum, systur, ömmu og hundi. Fjölskyldan hans hefur tvisvar hýst skiptinema frá Skotlandi og Þýskalandi. Systir hans fór með AFS til Nýja Sjálands 2003 til 2004 og bróðir hans fór til Bandaríkjanna 2001 til 2002. Hans aðaláhugamál er skólinn og þá helst stærðfræði og efnafræði. Hann spilar einnig tennis og hafnarbolta, hefur áhuga á tölvum, lestri og finnst gaman að bara hanga með vinum sínum. Hann er duglegur að hjálpa til við heimilsstörfin og hann er sá sem hugsar um hundinn á heimilinu. Hann hefur unnið sem sjálfboðaliði á heimili fyrir munaðarlaus börn og við önnur samfélagsleg verkefni. Í framtíðinni langar hann til að læra iðnaðarverkfræði.

Þýskaland – Angie Kreutz
Angie fæddist 6. febrúar 1994 og býr í Stendal ásamt móðu og stjúpföður. Hún hefur gaman af því að hlusta á tónlist, vera með vinum sínum, teikna, leika við köttinn sinn, fara í sund, lesa bækur eða ferðast um á sirkushjólinu sínu (unicycle). Hún hefur spilað á þverflautu síðan hún var fimm ára.Hún hefur mikinn áhuga á því að ferðast og kynnast nýju fólki. Hún elskar dýr og tekur það sérstaklega fram að henni finnst skólaleikfimi leiðinleg.

Þýskaland – Antonia Gottwald
Antonia fæddist 7. október 1993 og býr í Landau ásamt móður sinni, bróður og ketti. Hún spilar á píanó, finnst gaman af íþróttum eins og sundi, blaki, skokki og dansi. Hún er sjálfboðaliði í björgunarsveit og er i unglingadeild Rauða Krossins. Hún segist vera málglöð með mikinn húmor þó að það taki hana stundum smá tíma að opna sig gagnvart ókunnugum. Antonia bjó í Kenía í fjögur ár. Hana langar til að læra í framtíðinni eitthvað tengt listum, hönnun eða tungumálum.

Þýskaland – Julia Schreiber
Julia fæddist 11. nóvember 1992 og býr í Osterode ásamt foreldrum sínum og dýrum, hún er einkabarn. Hún hefur áhuga á hestum, eldamennsku og er dugleg að baka. Hún stundar hestamennskuna af miklum krafti í Þýskalandi og myndi gjarnar vilja fá tækifæri til að vera nálægt hestum á Íslandi. Vinir hennar segja að hún sé sjálfstæð og eigi auðvelt með að aðlagast. Hún hefur unnið sem sjálfboðalið á leikskóla og getur hugsað sér að verða kennari í framtíðinni.

Fósturfjölskyldur - upplýsingar

Með því að smella á hlekkinn hér að neðan færð þú upplýsingar um hýsingu erlendra skiptinema.

Síða fósturforeldra