EVS European Volunteer Service er sjálfboðaliðaþjónusta og er hluti af ungmennaáætlun Evrópusambandsins.
Sjálfboðaliðaþjónustan er fyrir fólk á aldrinum 18-30 ára.
Hægt er að leita eftir verkefnum í 32 Evrópulöndum.
Verkefnin eru frá því að vera 4 vikur til 12 mánaða.
Enginn kostnaður fellur á þátttakendur.
Þátttakendur frá greiddan allan ferðakostnað, allt uppihald (fæði og húsnæði), vasapening, tungumálakennslu og fræðslu/undirbúning fyrir dvöl og meðan á dvöl stendur.
Fyrsta skrefið er að fara inn á gagnagrunn þar sem öll verkefni eru skráð og velja sér verkefni við hæfi. Hægt er að takmarka leitina við land, borg, tegund verkefnis eða lengd dvalar.
Hér er hægt að skoða gagnagrunninn.
Þegar búið er að finna áhugavert verkefni (gott er að velja sér nokkur til að auka líkur á því að fá sjálfboðaliðastarf) þarf að hafa samband við ábyrgðaraðila þess en netfang er oftast neðst á upplýsingasíðu hvers verkefnis. Senda þarf tölvupóst þar sem fram kemur númer og heiti verkefnisins auk upplýsinga um hvenær umsækjandi getur hafið sjálfboðaliðastarfið og hversu lengi umsækjandi hefur hug á að vinna við verkefnið. Einnig þarf að koma fram að AFS á Íslandi séu þau samtök sem ábyrg eru fyrir sendingunni. Auk þessara upplýsinga þarf að senda ferilskrá á ensku og ca. einnar síðu bréf á ensku. Í þessu bréfi ætti að koma fram af hverju þú vilt gerast sjálfboðaliði og jafnvel af hverju þú valdir þetta fyrirtæki/starf. Einnig er gott að telja upp áhugamál og reyna að útlista hvað þú hefur fram að færa sem sjálfboðaliði.
Þegar þessi gögn hafa verið yfirfarin getur umsækjandi átt von á að verða boðaður í símaviðtal eða skype-viðtal.
Athugið að aðstandendur verkefna taka ákvörðun um hver verður ráðinn sem sjálfboðaliði. Því er betra að vanda ferilskrá og bréfið og skrifa góða ensku til að auka líkur á því að verða valin(n).
Ef umsækjandi fær jákvætt svar frá móttökusamtökunum skal hann láta skrifstofu AFS vita. AFS mun þá hefjast handa við að ljúka öðrum þáttum umsóknarferilsins. Fyrir brottför er svo haldin undirbúningsráðstefna á vegum “Evrópu unga fólksins”.
Athugið að á hverju ári eru fimm umsóknarfrestir og er ákjósanlegast að senda umsóknir með góðum fyrirvara. Umsóknarfrestirnir eru:
- 1. febrúar. Fyrir verkefni sem hefjast á tímabilinu 1. maí – 30. september
- 1. apríl. Fyrir verkefni sem hefjast á tímabilinu 1. júlí – 30. nóvember
- 1. júní. Fyrir verkefni sem hefjast á tímabilinu 1. september – 31. janúar
- 1. september. Fyrir verkefni sem hefjast á tímabilinu 1. desember – 30. apríl
- 1. nóvember. Fyrir verkefni sem hefjast á tímabilinu 1. febrúar – 31. júlí
Umsókn á íslensku
Til þess að AFS geti fylgst með framvindu umsóknar ykkar þá er mjög mikilvægt að þið fyllið út þessa umsókn og sendið til AFS á Íslandi. Einnig skulu fylgja með öll umóknargögn sem send voru út til mótttökusamtakanna (ferilskráin og bréfið).
Hægt er að skanna þetta inn og senda á linda@afs.org eða senda í pósti til AFS á Íslandi, Ingólfsstræti 3 101 Reykjavík.
