Subpage-banner-27

Um okkur

AFS eru alþjóðleg fræðslusamtök sem starfa í yfir 50 löndum í öllum heimsálfum.

Aðalviðfangsefni samtakanna hér á landi er nemendaskipti unglinga á aldrinum 15-18 ára. Samtökin eru óháð stjórnmálaflokkum og trúfélögum sem og hvers konar hagsmunasamtökum. Markmið AFS eru að auka kynni og skilning milli þjóða heims og fólks af ólíkum uppruna, víkka sjóndeildarhring ungs fólks og auka menntun þess.

Uppruna samtakanna má rekja til bandarískra sjálfboðaliða sem óku sjúkrabílum á vígvöllum Frakklands í fyrri heimsstyrjöldinni. Sjálfboðaliðarnir stofnuðu í kjölfarið samtökin AFS eða American Field Service. Þeir töldu að aukin kynni og skilningur milli þjóða gætu dregið úr líkum á að hörmungar stríðsins endurtækju sig og að nemendaskipti væru leið til að ná þessu markmiði.

AFS-félögin um allan heim eru að mestu byggð upp af sjálfboðaliðum. Auk þess hefur hvert félag sína skrifstofu með fastráðnu starfsfólki. AFS hóf starfsemi sína á Íslandi árið 1957 en þá héldu átta íslenskir skiptinemar til Bandaríkjanna. Síðan hefur starfið vaxið og nú sendir AFS á Íslandi árlega um 120-160 skiptinema til dvalar á erlendri grund og tekur á móti um 35-50 erlendum nemum ár hvert.