Subpage-banner-27

Hvað er AFS?

AFS eru alþjóðleg fræðslusamtök sem starfa í yfir 50 löndum í öllum heimsálfum.

Aðalviðfangsefni samtakanna hér á landi er nemendaskipti unglinga á aldrinum 15-18 ára. Samtökin eru óháð stjórnmálaflokkum og trúfélögum sem og hvers konar hagsmunasamtökum. Markmið AFS eru að auka kynni og skilning milli þjóða heims og fólks af ólíkum uppruna, víkka sjóndeildarhring ungs fólks og auka menntun þess.

Uppruna samtakanna má rekja til bandarískra sjálfboðaliða sem óku sjúkrabílum á vígvöllum Frakklands í fyrri heimsstyrjöldinni. Sjálfboðaliðrarnir stofnuðu í kjölfarið samtökin AFS eða American Field Service. Þeir töldu að aukin kynni og skilningur milli þjóða gætu dregið úr líkum á því að hörmungar stríðsins endurtækju sig og að nemendaskipti væru leið til að ná þessu markmiði.

AFS-félögin um allan heim eru að mestu leyti byggð upp af sjálfboðaliðum. Auk þess hefur hvert félag sína skrifstofu með fastráðnu starfsfólki. AFS hóf starfsemi sína á Íslandi árið 1957 en þá héldu átta fyrstu íslensku skiptinemarnir til Bandaríkjanna.Síðan hefur starfið vaxið og nú sendir AFS á Íslandi árlega milli 100-120 skiptinema til dvalar á erlendri grund og tekur á móti 35-40 erlendum nemum ár hvert.

Hvernig starfar AFS?
Aðildarlönd AFS eru nú 54 og árlega fara um 10.000 ungmenni um heim allan til dvalar á vegum samtakanna í lengri eða skemmri tíma. Í sérhverju aðildarlandi starfar landsfélag og er það fjárhagslega og rekstrarlega sjálfstæð eining. Alþjóðastjórn og alþjóðaskrifstofa AFS marka stefnu samtakanna, í samvinnu við landsfélögin, fylgjast með og samræma starfshætti og veita landsfélögunum aðstoð eftir þörfum. Sérhvert landsfélag hefur eigin stjórn sem mótar stefnu og áherslur í starfi félagsins. Daglegur rekstur er í höndum framkvæmdastjóra og starfsfólks en að starfinu kemur fjöldi sjálfboðaliða. Starfræktar eru svokallaðar deildir, þar sem sjálfboðaliðar, í samvinnu við starfsfólk, skipuleggja og bera ábyrgð á starfsemi AFS á svæðinu.

Það er misjafnt milli ára hvaða lönd eru í boði. Það kemur meðal annars til vegna þess að sum lönd eru eftirsóttari en önnur og geta ekki tekið á móti nema ákveðnum fjölda skiptinema.

AFS menntun
Þegar talað er um nemendaskipti er gjarnan minnst á hvað þeim fylgir mikill þroski fyrir alla hlutaðeigandi. Þetta er innihald þeirrar óformlegu menntunar sem AFS býður upp á, bæði þeim sem fara sem skiptinemar og þeim sem taka á móti skiptinemum. Innan AFS eru hugtökin „lærdómur um aðra menningarheima“ (e. Intercultural learning) og „hnattræn menntun“ (e. global education) notuð til að lýsa því hvað þessi óformlega menntun felur í sér.

Lærdómur um aðra menningarheima
Sú reynsla sem AFS býður upp á er að komast í nána snertingu við aðra menningu en sína eigin. Ungmenni fara til dvalar í öðru landi, búa hjá þarlendum fjölskyldum og ganga í þarlenda skóla. Skiptineminn og þeir sem hann umgengst í dvalarlandinu og eftir að heim kemur komast þannig í kynni við gildi, lífsmáta og hugsunarhátt sem eru ólík því sem þeir eiga að venjast og verða sér meðvitaðri um eigin menningu.

Hnattræn menntun
Eitt af því sem lærdómur um aðra menningarheima felur í sér er hnattræn menntun, þ.e. menntun, formleg og óformleg, sem stuðlar að auknum skilningi og vitund fólks um málefni sem eru öllum sameiginleg og snerta alla heimsbyggðina. Dæmi um slík mál eru umhverfismál, mannréttindamál, skipting auðs og valds og staða minnihlutahópa. Sá sem hefur hlotið slíka menntun skynjar að veröldin er eitt stórt samfélag með mörg sameiginleg vandamál og að það sem gerist í einum heimshluta hefur áhrif í öðrum heimshlutum.

Hvers vegna AFS?
  • AFS býr yfir áratuga reynslu í nemendaskiptum.
  • AFS eru frjáls félagasamtök sem eru ekki rekin í hagnaðarskyni.
  • Starfsemi AFS grundvallast á ósérhlífnu starfi þúsunda sjálfboðaliða um allan heim.
  • Styrkur AFS felst m.a. í öflugu námskeiðshaldi.
  • Hver þátttakandi fær trúnaðarmann til að leita til og einnig stendur nema og fjölskyldum (í dvalarlandi og heima) til boða stuðningur frá sjálfboðaliðum á svæðinu og frá skrifstofu AFS.
  • AFS býður þátttakendum spennandi og skemmtilegan félagsskap sjálfboðaliða AFS eftir að dvöl lýkur.

Sa_pic_side Mumanddaughtercr Cspax2 Annamolbectaracr