Subpage-banner-27

Stefnuyfirlýsing AFS

Markmið
AFS eru alþjóðleg sjálfboðaliðasamtök, óháð stjórnvöldum, sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni. Samtökin gefa fólki tækifæri til að læra um ólíka menningarheima í þeim tilgangi að aðstoða það við að þróa með sér þekkingu, hæfileika og skilning til þess að skapa réttlátari og friðsælli heim.

Grunngildi
AFS veitir fólki færi á að vera ábyrgir þegnar í alþjóðlegu samfélagi og að vinna í þágu friðar og umburðarlyndis í fjölbreytilegum heimi. Samtökin líta á frið sem kraftmikið hugtak, sem er ógnað af óréttlæti, ójafnræði og fordómum.

AFS leitast við að styrkja trúna á mannlega reisn, gildi hvers einstaklings, allra þjóða og menningarheima. Samtökin hvetja til þess að mannréttindum og grundvallarfrelsi einstaklinga sé sýnd full virðing, án tillits til kynþáttar, kynferðis, tungumáls, trúarbragða eða þjóðfélagsstöðu.

Starf AFS byggist á grunngildum samtakanna um mannlega reisn, virðingu fyrir margbreytileika, jafnvægi, næmi og umburðarlyndi.

Samþykkt á heimsþingi AFS 1993.

Aust_and_nzcr Group_mountain_norwaycr2 Greatwallchinacr