Létu herbergið ekki standa autt!







































Í janúar sl. birtist skemmtilegt viðtal í Fréttatímanum við Jóhannes Bjarka Urbancic Tómasson sem var skiptinemi í Túnis og síðar á Ítalíu (já á báðum stöðum sama skólaárið!) og fjölskyldu hans.  

Eins og sjá má á meðfylgjandi úrklippu er fjölskylda Jóhannesar Bjarka sannkölluð AFS fjölskylda.  Systir Jóhannesar Bjarka, Sigrún Edda hyggst á dvöl með AFS í haust á Spáni og á síðasta ári hýstu þau Lauru skiptinema frá Ítalíu.  Fjölskyldan lætur ekki þar við sitja og taka nú aftur að sér skiptinema skólaárið 2012 - 2013!

Lesa má viðtalið við Jóhannes Bjarka sem birtist í Fréttatímanum í janúar sl. HÉR undir fyrirsögninni:  ,,Fór út sem skiptinemi og lenti í byltingu".