Nú um helgina tekur AFS þátt í Fjölmenningadegi Reykjavíkurborgar sem haldinn verður nk. laugardag, 12. maí í fjórða sinn. Þar ætla sjálfboðaliðar og núverandi skiptinemar sem nú dvelja hér standa fyrir ,,SÖLU Á SKIPTINEMUM" á fjölþjóðlegum markaði.
Í lok ágúst á þessu ári er von á 26 nemum frá 16 þjóðlöndum til landsins og vinnur AFS nú að því að finna nemunum heimili.
Að sögn Sólveigar Ásu Tryggvadóttur, starfsmanns AFS verða nemarnir ekki seldir í orðsins fyllstu merkingu. Ekki megi líta á þetta sem hefðbundin viðskipti, ætlunin sé öllu heldur að vekja athygli á málstaðnum. Þeir sem hýsi skiptinema hafi ávallt hag af því að kynnast nýrri menningu og út á það gangi ,,salan". "Allt sem þarf til að taka að sér skiptinema" segir Sólveig Ása "er hjartarými, löngun til að læra eitthvað nýtt, kímnigáfu og sveigjanleika".
Þeir sem vilja kynna sér málin betur eru hvattir til að mæta í ráðhús Reykjavíkur milli 13:30 og 17:00.